Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 88

Njáls saga 88 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 88)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
878889

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Þetta sumar hið sama komu þeir Njálssynir til Noregs af
Orkneyjum og voru þar í kaupstefnu og biðu þar Kára
Sölmundarsonar sem þeir höfðu við mælst. Þráinn Sigfússon bjó
þá skip sitt til Íslands og var nú mjög búinn.



Þá fór Hákon jarl á veislu til Guðbrands. Um nóttina fór
Víga-Hrappur til goðahúss þeirra jarls og Guðbrands. Hann
gekk inn í húsið. Hann sá Þorgerði hölgabrúði sitja og var
hún svo mikil sem maður roskinn. Hún hafði mikinn gullhring á
hendi og fald á höfði. Hann sviptir faldinum hennar og tekur
af henni gullhringinn. Þá sér hann kerru Þórs og tekur af
honum annan gullhring. Hann tók hinn þriðja af Irpu og dró
þau öll út og tók af þeim allan búnaðinn. Síðan lagði hann
eld í goðahúsið og brenndi upp. Eftir það gengur hann braut.
Tók þá að morgna. Hann gengur um akurland nokkurt. Þar
spruttu upp sex menn með vopnum og sækja þegar að honum en
hann verst vel. Verða þær málalyktir að hann vegur þrjá menn
en særir Þránd til ólífis en eltir tvo til skógar svo að þeir
báru enga njósn jarli.



Hann gekk þá að Þrándi og mælti: "Kosti á eg nú að vega þig
og vil eg það eigi. Skal eg meira virða mágsemd við þig en
þér virðið við mig."



Hrappur ætlar nú að snúa aftur á skóginn. Sér hann nú að menn
eru komnir meðal skógarins og hans. Treystist hann þá eigi
þangað á að leita. Leggst hann þá niður í runna nokkura og
liggur þar um stund.



Þeir Hákon jarl og Guðbrandur gengu þenna morgun snemma til
goðahússins og fundu það brunnið upp en úti þrjú goðin og úr
öllum skrúðanum.



Þá tók Guðbrandur til orða: "Mikill máttur er gefinn goðum
vorum er þau hafa gengið sjálf úr eldinum."



"Eigi munu goðin þessu valda," segir jarl. "Maður mun brennt
hafa hofið en borið út goðin. En goð hefna eigi alls þegar.
Mun sá maður braut rekinn úr Valhöllu og þar aldrei koma er
þetta hefir gert."



Í því bili hljópu þangað menn jarls fjórir og sögðu þeim ill
tíðindi, kváðust fundið hafa á akrinum þrjá menn vegna en
særðan Þránd til ólífis.



"Hver mun slíku valda?" segir jarl.



"Víga-Hrappur," sögðu þeir.



"Þá mun hann hafa brennt goðahúsið," segir jarl.



Þeim þótti hann víst til þess líklegur.



"Hvar mun hann nú vera?" sagði jarl.



Þeir sögðu að Þrándur segði að hann hefði lagst niður í runna
nokkura.



Jarl fer þangað að leita og var Hrappur þá allur í brautu.
Skipaði jarl þá til að leita hans og fundu þeir hann eigi.
Jarl var sjálfur í leitinni og bað hann þá hvílast fyrst.



Jarl gekk þá einn saman braut frá öðrum mönnum og bað engan
mann með sér ganga og dvaldist um stund. Hann féll á knébeð
og hélt fyrir augu sér. Síðan gekk hann aftur til þeirra.



Hann mælti: "Gangið þér með mér."



Þeir gengu með honum. Hann gekk þvers af leiðinni þeirri er
þeir höfðu áður farið og komu að dalverpi einu. Þar spratt
Hrappur upp fyrir þeim og hafði hann þar fólgið sig áður.
Jarl eggjar menn að hlaupa eftir honum en Hrappur var svo
fóthvatur að þeir komust hvergi í nánd honum.



Hrappur stefndi til Hlaða. Þar voru þeir þá búnir til hafs
hvorirtveggju, Þráinn Sigfússon og Njálssynir. Hrappur hleypur
þar að sem þeir eru fyrir Njálssynir.



Hann mælti: "Bjargið mér góðir drengir því að jarl vill drepa
mig."



Helgi leit við honum og mælti: "Ógæfusamlega líst mér á þig
og mun sá betur hafa er eigi tekur við þér."



"Það mundi eg vilja," segir Hrappur, "að þið hlytuð af mér
mest illt."



"Menn erum við til þess," segir Helgi, "að launa þér það þá er
stundir líða."



Hrappur sneri þá til móts við Þráin Sigfússon og bað hann
ásjá.



"Hvað er þér á höndum?" segir Þráinn.



Hrappur mælti: "Brennt hefi eg goðahús fyrir jarli og drepið
menn nokkura og mun hann hér kona brátt því að hann er
sjálfur í eftirleitinni."



"Varla samir mér það," segir Þráinn, "svo mikið gott sem jarl
hefir mér gert."



Þá sýndi Hrappur Þráni gripina þá er hann hafði borið úr
goðahúsinu og bauð að gefa honum féið. Þráinn sagði að hann
mundi eigi þiggja nema annað fé kæmi í mót.



Hrappur mælti: "Hér mun eg stað nema og skal mig hér drepa
fyrir augum þér og munt þú þá bíða af hvers manns ámæli."



Þá sjá þeir ferð jarls og manna hans. Þá tók Þráinn við
Hrappi en lét skjóta báti og fluttist út á skipið.



Þráinn mælti: "Nú er þetta fylgsni helst að brjóta botn úr
tunnum tveim og skalt þú þar fara í."



Svo var gert að hann fór í tunnurnar og voru bundnar saman
síðan og látnar fyrir borð.



Þá kemur jarl með liði sínu til Njálssona og spurði ef
Hrappur hefði komið þar. Þeir sögðu að hann kom. Jarl spurði
hvert hann færi þaðan. Þeir kváðust eigi reiður hafa á hent.



Jarl mælti: "Sá skyldi mikla sæmd af mér hafa er mér segði
til Hrapps."



Grímur mælti hljótt við Helga: "Fyrir hví skulum við eigi
segja? Eg veit eigi nema Þráinn launi okkur engu góðu."



"Eigi skulum við segja að heldur," segir Helgi, "þar er líf
hans liggur við."



Grímur mælti: "Vera kann að jarl snúi á okkur hefndinni því
að hann er svo reiður að niður mun nokkur verða að koma."



"Ekki munum við að því fara," segir Helgi, "en þó skulum við nú í
braut leggja skipinu og í haf þegar er gefur."



"Skulum við nú ekki bíða Kára?" segir Grímur.



"Ekki mun eg um það hirða nú," segir Helgi.



Þeir leggja út undir eyna og bíða þar byrjar.



Jarl gekk að skipamönnum og leitaði við alla þá en allir
duldu að né eitt vissu til Hrapps.



Þá mælti jarl: "Nú munum vér fara að finna Þráin félaga minn
og mun hann selja fram manninn ef hann veit nokkuð til."



Eftir það tóku þeir langskip eitt og fóru út til
kaupskipsins. Þráinn kennir ferð jarls og stendur upp og
fagnar honum blíðlega.



Jarl tók því vel og mælti svo: "Manns þess leitum vér er
heitir Hrappur og er íslenskur. Hann hefir gert oss hvetvetna
illt. Viljum vér nú þess biðja yður að þér seljið hann fram
eða segið til hans."



Þráinn mælti: "Vissuð þér að eg drap útlaga yðvarn herra og
hætti þar til lífi mínu og þá eg fyrir það af yður stórsæmdir."



"Meiri sæmdir skalt þú nú hafa," segir jarl.



Þráinn hugsaði fyrir sér og þóttist eigi vita hvað jarl mundi
mest meta. Þrætir nú þó að Hrappur sé þar og bað jarl leita.
Jarl hafði lítið við það og gekk á land og í braut frá öðrum
mönnum og var þá reiður mjög svo að engi maður þorði við hann
að mæla.



Jarl mælti: "Vísið mér til Njálssona og skal eg nauðga þeim
til að þeir segi mér hið sanna."



Þá var honum sagt að þeir höfðu út látið.



"Ekki má það þá," segir jarl, "en vatnkeröld tvö voru þar við
skipið Þráins og má þar maður vel hafa fólgist í. Og ef
Þráinn hefir fólgið hann þá mun hann þar í hafa verið og munum
vér nú fara í annað sinn að finna Þráin."



Þráinn sér þetta, að jarl ætlar enn út, og mælti: "Svo reiður
sem jarl var næstum þá mun hann nú vera hálfu reiðari og
liggur nú við líf allra manna þeirra er á skipinu eru ef
nokkur segir til Hrapps."



Þeir hétu allir að leyna því að hver var um sig mjög hræddur.
Þeir tóku sekka nokkura úr búlkanum en létu Hrapp koma þar í
staðinn. Fóru nú aðrir sekkar á hann ofan þeir er léttir
voru. Nú kemur jarl er þeir höfðu um Hrapp búið. Þráinn
kvaddi vel jarl. Jarl tók kveðju hans og ekki skjótt. Sáu
þeir að jarl var allmjög reiður.



Jarl mælti til Þráins: "Sel þú fram Hrapp því að eg veit víst
að þú hefir fólgið hann."



"Hvar mun eg hafa fólgið hann herra?" segir Þráinn.



"Þér mun það kunnigast," segir jarl, "en ef eg skal geta til
þá ætla eg að þú hafir áðan fólgið hann í vatnkeröldum
þeim er hér voru við skipið."



"Eigi vildi eg herra," segir Þráinn, "að þér vænduð mig lygi
heldur vildi eg að þér leituðuð um skipið."



Þá fór jarl upp á skipið og leitaði og fann eigi.



Þráinn mælti: "Berið þér mig nú undan herra?"



"Fjarri fer það," segir jarl, "en eigi veit eg hví vér finnum
hann eigi. Eg þykist sjá allt í gegnum þá er eg kem á land en þá
sé eg ekki til er eg kem hér."



Lætur hann þá róa til lands með sig. Hann var svo reiður að
ekki mátti við hann mæla. Sveinn son hans var þar með honum.



Hann mælti: "Undarlegt skaplyndi er það að láta óverða menn
gjalda reiði sinnar."



Jarl gekk þá enn einn frá öðrum mönnum. Síðan gekk hann þegar
aftur til þeirra og mælti. Róum vér enn út til þeirra."



Þeir gerðu svo.



"Hvar mun hann fólginn hafa verið?" segir Sveinn.



Jarl svaraði: "Eigi mun það nú skipta því að hann mun nú í
brautu vera þaðan. Sekkar tveir lágu þar hjá búlkanum og mun
Hrappur þar hafa komið í staðinn þeirra í búlkann."



Þráinn tók til orða: "Fram hrinda þeir enn skipinu og
munu enn ætla út hingað til vor. Skulum vér nú taka hann úr
búlkanum og koma öðru í staðinn en þó skulu sekkarnir
lausir."



Þeir gerði svo. Þá mælti Þráinn: "Látum vér Hrapp nú í
seglið, það er heflað upp við rána."



Þeir gera svo. Jarl kemur nú til þeirra.



Var hann þá allreiður og mælti: Vilt þú nú selja fram manninn
Þráinn? Og er nú verra en fyrr."



Þráinn svarar: "Fyrir löngu seldi eg hann fram ef hann væri í
minni varðveislu eða hvar mun hann verið hafa?"



"Í búlkanum," segir jarl.



"Hví leituðuð þér hans eigi þar þá?" segir Þráinn.



"Eigi kom oss það þá í hug," segir jarl.



Síðan leituðu þeir hans um allt skipið og fundu hann eigi.



Þá mælti Þráinn: "Viljið þér mig nú undan bera herra?"



"Víst eigi," segir jarl, "því að eg veit að þú hefir fólgið
manninn þó að eg finni hann eigi. En heldur vil eg að þú
níðist á mér en eg á þér."



Fór jarl þá til lands.



"Nú þykist eg sjá," sagði jarl, "hvar Þráinn hefir fólgið
Hrapp."



"Hvar?" sagði Sveinn son hans.



"Í seglinu," segir jarl, "er var heflað upp við rána."



Þá rann á byr og sigldi Þráinn út úr firðinum til hafs. Hann
mælti þá þetta er lengi hefir uppi verið haft síðan:



Látum geisa Gamminn,

gerrat Þráinn vægja.


En er jarl spurði orð Þráins þá mælti hann: "Eigi ber hér til
óviska mín heldur það samband þeirra er þeim dregur báðum til
bana."



Þráinn var skamma stund í hafi og kom til Íslands og fór heim
til bús síns. Hrappur fór með Þráni og var með honum þau
misseri en um vorið eftir fékk Þráinn honum bú á Hrappstöðum
og bjó Hrappur þar. Hann var þó lengstum að Grjótá og þótti
þar öllu spilla. Það mæltu sumir menn að vingott væri með
þeim Hallgerði og hann fífldi hana en sumir mæltu því í móti.



Þráinn fékk skipið Merði órækju frænda sínum. Sá Mörður vó
Odd Halldórsson austur í Gautavík í Berufirði.



Allir frændur Þráins héldu hann nú fyrir höfðingja.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.