Njáls saga 39 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Nj ch. 39)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þórður hét maður. Hann var kallaður leysingjason.
Sigtryggur hét faðir hans og hafði hann verið leysingi
Ásgerðar og drukknaði hann í Markarfljóti. Var Þórður því með
Njáli síðan. Hann var mikill maður og styrkur. Hann hafði
fóstrað alla sonu Njáls. Þórður lagði hug á frændkonu Njáls
er Guðfinna hét Þórólfsdóttir. Hún var matselja heima þar og
var þá óhraust.
Bergþóra kom að máli við Þórð leysingjason: "Þú skalt fara,"
segir hún, "og drepa Brynjólf frænda Hallgerðar."
"Engi er eg vígamaður," segir hann, "en þó mun eg til hætta
ef þú vilt."
"Það vil eg," segir hún.
Síðan tók hann hest og reið upp til Hlíðarenda og lét kalla
Hallgerði út og spurði hvar Brynjólfur væri.
"Hvað vilt þú honum?" segir hún.
Hann mælti: "Eg vil að hann segi mér hvar hann hefir hulið
hræ Atla. Mér er sagt að hann hafi illa um búið."
Hún vísaði til hans og kvað hann vera í Akratungu niðri.
"Gæt þú," segir Þórður, "að honum verði eigi slíkt sem Atla."
"Engi ert þú vígamaður," segir hún, "og mun ekki undir hvar
þið finnist."
"Aldrei hefi eg séð mannsblóð," segir hann, "og veit eg eigi
hversu mér bregður við" og hleypti úr túninu og svo ofan í
Akratungu.
Rannveig móðir Gunnars hafði heyrt á viðurtal þeirra og
mælti: "Mjög frýr þú Hallgerður honum hugar en eg ætla hann
öruggan mann og mun það frændi þinn finna."
Þeir mættust á förnum vegi, Brynjólfur og Þórður.
Þórður mælti: "Ver þú þig Brynjólfur því að eg vil eigi níðast
á þér."
Bryjólfur reið að Þórði og hjó til hans. Þórður hjó í mót með
öxi og í sundur skaptið fyrir framan hendur honum Brynjólfi
og hjó þegar í annað sinn til hans og kom framan á bringuna
og gekk þegar á hol. Féll Brynjólfur þá af baki og var þegar
dauður. Þórður fann smalamann Hallgerðar og lýsti vígi á hönd
sér og sagði hvar Brynjólfur lá og bað hann segja Hallgerði
vígið. Síðan reið hann til Bergþórshvols og sagði Bergþóru
vígið og öðrum mönnum.
"Njót þú heill handa," sagði hún.
Smalamaður sagði Hallgerði vígið. Hún varð beisk við og kvað
hér skyldu mikið illt af leiða ef hún mætti ráða.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.