Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 36

Njáls saga 36 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 36)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
353637

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Gunnar ríður til þings. En áður en hann reið heiman mælti
hann til Hallgerðar: "Ver þú dæl meðan eg er heiman og sýn af
þér enga fárskapi þar sem við vini mína er um að eiga."



"Tröll hafi þína vini," segir hún.



Gunnar ríður til þings og sá að eigi var gott orðum við hana
að koma. Njáll reið til þings og synir hans allir.



Nú er frá því að segja hvað heima er tíðinda. Þeir áttu
skóg saman, Njáll og Gunnar, í Rauðaskriðum. Þeir höfðu eigi
skipt skóginum en hvor var vanur að höggva sem þurfti og
taldi hvorgi á annan um það.



Kolur hét verkstjóri Hallgerðar. Hann hafði verið með henni
lengi og var hið mesta illmenni.



Svartur hét maður. Hann var húskarl Njáls og Bergþóru og
líkaði þeim við hann vel. Bergþóra mælti við hann að hann
skyldi fara í Rauðaskriður og höggva skóg "en eg mun fá til
menn að draga heim viðinn."



Hann kveðst vinna mundu það er hún legði fyrir hann. Hann fór
upp í Rauðaskriður. Tekur hann þar og höggur skóg og skyldi
þar að vera viku.



Snauðir menn komu til Hlíðarenda austan frá Markarfljóti og
sögðu að Svartur hafði verið í Rauðaskriðum og höggvið skóg
og gert mikið að.



"Svo mun Bergþóra til ætla," segir Hallgerður, "að ræna mig
mörgu en því skal eg ráða að hann höggvi eigi oftar."



Rannveig heyrði, móðir Gunnars, og mælti: "Þó hafa húsfreyjur
þótt góðar austur hér að ekki hafi staðið í mannráðum."



Nú leið af nóttin og um morguninn kom Hallgerður að máli við
Kol og mælti: "Verk hefi eg þér hugað" og fékk honum öxi. "Far
þú í Rauðaskriður. Þar munt þú finna Svart."



"Hvað skal eg honum?" segir hann.



"Spyr þú að því," segir hún, "þar sem þú ert hið mesta
illmenni? Drepa skalt þú hann," segir hún.



"Gert mun eg það geta," segir hann, "en það er þó líkast að
eg gefi mig við."



"Vex þér hvetvetna í augu," segir hún, "og fer þér illa þar
sem eg hefi mælt eftir þér hvern hlut. Mun eg fá til annan
mann að gera þetta ef þú þorir eigi."



Hann tók öxina og var reiður mjög og tekur hest er Gunnar
átti og ríður þar til er hann kemur austur að Markarfljóti.
Hann steig þar af baki og beið í skóginum þar til er þeir
höfðu borið ofan viðinn og Svartur var einn eftir.



Hleypur Kolur þá að honum og mælti: "Fleiri munu kunna að
höggva stórt en þú einn" og setti öxina í höfuð honum og hjó
hann banahögg og ríður heim síðan og segir Hallgerði vígið.



"Njót heill handa," segir hún, "og skal eg þig svo varðveita
að þig skal ekki saka."



"Vera má það," segir hann, "en hinn veg dreymdi mig þó áður
en eg vó vígið."



Nú koma þeir upp í skóginn og finna Svart veginn og flytja
hann heim.



Hallgerður sendi mann til þings að segja Gunnari vígið.
Gunnar hallmælti Hallgerði ekki um fyrir sendimanninum og
vissu menn eigi hvort honum þótti vel eða illa. Litlu síðar
stóð hann upp og bað menn sína ganga með sér. Þeir gerðu svo
og fóru til búðar Njáls. Gunnar sendi mann eftir Njáli og bað
hann út koma. Njáll gekk út þegar og gengu þeir Gunnar á tal.



Gunnar mælti: "Víg hefi eg að segja þér og hefir valdið
Hallgerður kona mín en vegið hefur Kolur verkstjóri minn en
fyrir hefir orðið Svartur húskarl þinn."



Njáll þagði meðan Gunnar sagði söguna.



Þá mælti Njáll: "Þurfa munt þú að láta hana eigi öllu fram
koma."



Gunnar mælti: "Sjálfur skalt þú dæma."



Njáll mælti: "Erfitt mun þér verða að bæta öll slys
Hallgerðar og mun annars staðar meira slóða draga en hér er
við eigum hlut að og mun hér þó mikið á vanta að vel sé og
munum við þess þurfa að muna það er við höfum lengi vel við
mælst. Og væntir mig að þér fari vel en þó munt þú verða mjög
að þreyttur."



Njáll tók sjálfdæmi af Gunnari og mælti: "Ekki mun eg halda
máli þessu til kapps. Þú skalt gjalda tólf aura
silfurs. En það vil eg til skilja þó að nokkuð komi það úr
vorum garði er þér eigið um að gera að þér stillið eigi verr
gerðinni."



Gunnar sagði það maklegt vera. Gunnar greiddi af hendi féið
vel og reið heim síðan.



Njáll kom heim af þingi og synir hans.



Bergþóra sá féið og mælti: "Vel er þessu í hóf stillt en
jafnmikið fé skal koma fyrir Kol er stundir líða."



Gunnar kom heim af þingi og taldi á Hallgerði. Hún kallaði
betri menn óbætta liggja margstaðar. Gunnar kvað hana ráða
mundu tiltekjum sínum "en eg skal ráða hversu málin lúkast."



Hallgerður hældist jafnan um víg Svarts en Bergþóru líkaði
það illa.



Njáll fór upp í Þórólfsfell og synir hans að skipa þar til
bús. En þann sama dag varð sá atburður er Bergþóra var úti að
hún sér mann ríða að garði svörtum hesti. Hún nam staðar og
gekk eigi inn. Hún kenndi eigi manninn. Sjá maður hafði spjót
í hendi og gyrður saxi. Hún spurði þenna mann að nafni.



"Atli heiti eg," sagði hann.



Hún spurði hvaðan hann væri.



"Eg er austfirskur maður," segir hann.



"Hvert skalt þú fara?" segir hún.



"Eg er maður vistlaus," segir hann, "og ætlaði eg að finna
Njál og Skarphéðinn og vita ef þeir vildu taka við mér."



"Hvað er þér hentast að vinna?" segir hún.



"Eg er akurgerðarmaður og margt er mér vel hent að gera,"
segir hann, "en eigi vil eg því leyna að eg er maður
skapharður og hefir jafnan hlotið um sárt að binda fyrir
mér."



"Ekki gef eg þér það að sök," segir hún, "þótt þú sért engi
bleyðimaður."



Atli mælti: "Ert þú nokkurs ráðandi hér?"



"Eg er kona Njáls," segir hún, "og ræð eg ekki síður hjón
en hann."



"Vilt þú taka við mér?" segir hann.



"Gera mun eg kost á því," segir hún, "ef þú vilt vinna allt
það er eg legg fyrir þig og svo þó að eg vilji senda þig til
mannráða."



"Átt þú svo til varið um menn," segir hann, "að þú munt ekki
mín þurfa að því að kosta."



"Það skil eg er eg vil," segir hún.



"Kaupa munum við að þessu," sagði hann.



Þá tók hún við honum.



Njáll kom heim og synir hans. Njáll spurði Bergþóru hvað manna
sjá væri.



"Hann er húskarl þinn," segir hún, "og tók eg við honum því að
hann lést vera óhandlatur."



"Ærið mun hann stórvirkur," segir Njáll, "en eigi veit eg hvort
hann er svo góðvirkur."



Skarphéðinn var vel til Atla.



Njáll ríður til þings um sumarið og synir hans. Gunnar var
á þingi. Njáll tók upp fésjóð er hann hafði heiman.



Skarphéðinn spyr: "Hvað fé er það faðir?"



"Hér er fé það," segir Njáll, "er Gunnar greiddi mér fyrir
heimamann vorn fyrra sumar."



"Koma mun það til nokkurs," sagði Skarphéðinn og
glotti við.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.