Njáls saga 20 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Nj ch. 20)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Njáll hét maður. Hann var sonur Þorgeirs gollnis
Þórólfssonar. Móðir Njáls hét Ásgerður. Hún var dóttir Áskels
hersis hins ómálga. Hún hafði komið út hingað til Íslands og
numið land fyrir austan Markarfljót milli Öldusteins og
Seljalandsmúla. Sonur hennar var Holta-Þórir faðir þeirra
Þorleifs kráks, er Skógverjar eru frá komnir, og Þorgríms
hins mikla og Þorgeirs skorargeirs.
Njáll bjó að Bergþórshvoli í Landeyjum. Annað bú átti hann í
Þórólfsfelli. Njáll var vel auðigur að fé og vænn maður
yfirlits en sá hlutur var á ráði hans að honum óx eigi skegg.
Hann var lögmaður svo mikill að engi var hans jafningi, vitur
og forspár, heilráður og góðgjarn og varð allt að ráði það er
hann réð mönnum, hógvær og drenglyndur, langsýnn og
langminnigur. Hann leysti hvers manns vandræði er á hans fund
kom.
Bergþóra hét kona hans. Hún var Skarphéðinsdóttir,
kvenskörungur mikill og drengur góður og nokkuð skaphörð. Þau
Njáll áttu sex börn, þrjá sonu og þrjár dætur og koma þeir
allir við þessa sögu.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.