Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Nj ch. 2

Njáls saga 2 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Nj ch. 2)

Anonymous íslendingasögurNjáls saga
123

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Það var einu hverju sinni að þeir bræður riðu til alþingis,
Höskuldur og Hrútur. Þar var fjölmenni mikið.



Þá ræddi Höskuldur við Hrút: "Það vildi eg bróðir að þú
bættir ráð þitt og bæðir þér konu."



Hrútur svarar: "Lengi hefir mér það í hug verið og hefir mér
þó tvennt um sýnst. En nú vil eg gera að þínu skapi eða hvar
skulum við á leita?"



Höskuldur svaraði: "Hér eru nú höfðingjar margir á þingi og
er gott um að velja en þó hefi eg í einum stað á stofnað
fyrir þína hönd. Kona heitir Unnur og er dóttir Marðar gígju,
hins vitrasta manns, og er hann hér á þingi og svo dóttir
hans og mátt þú nú sjá hana ef þú vilt."



Og annan dag eftir er menn gengu til lögréttu sáu þeir konur
úti hjá Rangæingabúð, vel búnar.



Þá mælti Höskuldur við Hrút: "Þar er hún nú Unnur er eg sagði
þér frá eða hversu líst þér á hana?"



"Vel," sagði hann, "en eigi veit eg hvort við eigum heill
saman."



Síðan ganga þeir til lögréttu. Mörður gígja mælti lögskil að
vanda sínum og gekk heim til búðar sinnar. Höskuldur stóð upp
og Hrútur og gengu til búðar Marðar og inn í búðina. Mörður
sat í innanverðri búðinni. Þeir kvöddu hann. Hann stóð upp í
mót þeim og tók í hönd Höskuldi og settist hann niður hjá
honum en Hrútur sat hið næsta Höskuldi.



Síðan töluðu þeir margt og komu þar niður ræður Höskulds að
"eg mæli til kaupa við þig. Vill Hrútur gerast mágur þinn og
kaupa dóttur þína og skal eg eigi mitt til spara."



Mörður svaraði: "Veit eg að þú ert höfðingi mikill en bróðir
þinn er mér ókunnigur."



Höskuldur mælti: "Framar er hann en eg."



Mörður mælti: "Mikið munt þú þurfa fram að leggja með honum
því að hún á allan arf eftir mig."



"Eigi þarf og lengi að bíða hvað eg skal á kveða," sagði
Höskuldur, "hann skal hafa Kambsnes og Hrútsstaði og upp til
Þrándargils. Hann á og kaupskip í siglingum."



Hrútur talaði þá til Marðar: "Hugsa svo um bóndi að bróðir
minn mun mér mjög hafa fram haldið fyrir ástar sakir. En ef
þér viljið gera málið að álitum þá vil eg að þér gerið
kostinn."



Mörður svaraði: "Hugsað hefi eg kostinn. Hún skal hafa sex
tigu hundraða og skal aukast þriðjungi í þínum garði en ef
þið eigið erfingja þá skal vera helmingarfélag með ykkur."



Hrútur mælti: "Þenna kost vil eg og höfum nú votta við."



Síðan stóðu þeir upp og tókust í hendur og fastnaði Mörður
Hrúti dóttur sína Unni og skyldi boð vera hálfum mánuði eftir
mitt sumar að Marðar.



Nú ríða þeir heim af þingi hvorirtveggju og ríða þeir vestur
hjá Hallbjarnarvörðum. Þá reið í mót þeim Þjóstólfur, son
Bjarnar gullbera úr Reykjardal, og sagði þeim skipkomu í
Hvítá og var þar kominn út Össur föðurbróðir Hrúts og vildi
að Hrútur kæmi til fundar við hann sem fyrst. En er Hrútur
spurði þetta þá bað hann Höskuld fara til skips með sér.
Höskuldur fór og þeir báðir.



En er þeir komu til skips fagnar Hrútur Össuri frænda sínum
vel og blíðlega. Össur bauð þeim inn í búð að drekka. Síðan
var tekið af hestum þeirra og gengu þeir inn og drukku.



Hrútur mælti til Össurar: "Nú skalt þú ríða vestur með mér
frændi og vera með mér í vetur."



"Eigi hendir svo," sagði hann, "því að eg segi þér lát
Eyvindar bróður þíns en hann leiddi þig til arfs á Gulaþingi
og munu nú taka óvinir þínir ef þú kemur eigi til."



"Hvað er nú til ráðs bróðir?" sagði Hrútur, "þykir mér nú
vandast málið er eg hefi áður ráðið brúðlaup mitt."



Höskuldur mælti: "Þú skalt ríða suður til fundar við Mörð og
bið hann að þið skipið máldaga annan og sitji dóttir hans
þrjá vetur í festum. En eg mun ríða heim og flytja vöru þína
til skips."



Hrútur mælti: "Nú vil eg að þú takir mjöl og við og slíkt
annað sem þér líkar af varningi."



Hrútur lét taka hesta sína og reið hann suður en Höskuldur
reið heim vestur.



Hrútur kom austur á Rangárvöllu til Marðar og hafði þar góðar
viðtökur. Hrútur sagði Merði allt efni sitt og bað hann ráð á
leggja.



Mörður mælti og spurði hversu mikið fé það væri.



Hrútur sagði vera tvö hundruð marka ef hann fengi allt.



Mörður mælti: "Mikið er það í móti erfðinni minni og skalt þú
víst fara ef þú vilt."



Síðan breyttu þeir máldaganum og skyldi Unnur sitja þrjá
vetur í festum.



Nú ríður Hrútur til skips og er við skip um sumarið þar til
er búið var. Höskuldur færði fé allt til skips það sem Hrútur
átti. Hrútur fékk Höskuldi í hendur fjárvarðveislu sína
vestur þar meðan hann væri utan. Reið Höskuldur heim til bús
síns.



Litlu síðar gaf þeim byr og sigla þeir í haf. Þeir voru úti
þrjár vikur og komu að við Hernar á Hörðalandi og sigldu
síðan austur til Víkur.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.