Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Harð ch. 4

Harðar saga 4 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Harð ch. 4)

Anonymous íslendingasögurHarðar saga
345

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Nú búast menn til brúðkaupsferðar. Kollur frá Lundi var
boðinn til brúðkaupsins einnhver virðingamestur. Hann báðu
þeir feðgar vera fyrir boðsmönnum því að Valbrandur var svo
gamall að hann nennti eigi að fara en Torfi vildi eigi fara.
Kollur réðst til ferðar með brúðinni og voru saman þrír tigir
manna. Þau gistu að Þverfelli í Reykjadal hinum syðra.



Grímur hinn litli fóstri Signýjar skyldi geyma hrossa á
gistingunni og um morguninn er hann leitaði fann hann eigi
Svartfaxa, hest Signýjar. Grímur fór þá að leita norður yfir
háls til Flókadals. Gekk hann eftir döggslóð. Hann fann
hestinn dauðan í jarðfalli þar í dalnum. Hann tók af fjötur
er hann hafði haft á honum um nóttina og fór síðan aftur og
segir Signýju að hestur hennar var dauður hinn góði og hversu
til hafði borið.



Hún svarar: "Þetta er ill furða og mun eigi gott á vita. Vil
eg aftur hverfa og ekki fara lengra."



Kollur kvað það ógeranda og ei duga að bregða ferð sinni
þvílíkri fyrir þessa sök. Og svo varð að vera sem Kollur
vildi og fara þau öll saman og koma þau til Ölfusvatns og
hafði Grímkell þar margt fyrirboðsmanna. Var þar veisla hin
prýðilegasta. Fór hún vel fram og skörulega.



Eftir afliðna veisluna fór Kollur í burt og aðrir boðsmenn en
Signý var þar eftir og fóstra hennar er Þórdís hét og Grímur
hinn litli. Grímkell hafði gefið Koll góðar gjafir og talaði
vináttusamlega við hann en þótti þeir feðgar sýnt óvirða sitt
mál er þeir sóttu eigi brúðkaupið. Spurði hann og vísuna
Torfa og gat ekki að gert. Gerðist þar nú fátt á milli.
Grímkell var stirðlyndur en Signý var fálát og varð fátt um
með þeim því að þau máttu ekki vini saman eiga, nema Grímur
hinn litli, hann gat svo gert að þeim báðum líkaði vel. Leið
svo fram hið fyrsta ár.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.