Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

HalldSn ch. I 1

Halldórs þáttr Snorrasonar 1 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (HalldSn ch. I 1)

UnattributedHalldórs þáttr Snorrasonar
I 12

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Halldór son Snorra goða af Íslandi var með Haraldi konungi
Sigurðarsyni meðan hann var utanlands og lengi síðan er hann
fékk ríki í Noregi og vel virður af honum.



Það bar að eitt sinn að íslenskur maður sá er Eilífur hét
varð fyrir reiði Haralds konungs en hann bað Halldór flytja
mál sitt við konung og hann gerði svo. Halldór var
stríðmæltur og harðorður en mjög fátalaður. Hann bað konung
að Eilífur skyldi fá sætt af honum. Konungur neitti því
þverlega. Halldór var þykkjumikill sem aðrir Íslendingar og
þótti illa er hann fékk eigi það er hann beiddi.



Hann fer síðan brott frá hirðinni og Eilífur með honum. Þeir
komu á Gimsar til Einars þambaskelfis og beiddi Halldór að
hann mundi taka við Eilífi og veita honum ásjá. Einar sagðist
mundu við honum taka með því móti að Halldór vildi og þar
vera með honum.



Halldór mælti: "Hvar vísar þú mér til sætis?"



Einar bað hann sitja í öndvegi gegnt sér.



Einar átti þá konu er Bergljót hét. Hún var dóttir
Hákonar jarls illa, Sigurðarsonar Hlaðajarls. Halldór gekk
jafnan til Bergljótar og sagði henni mörg ævintýr þau sem
utanlands höfðu gerst í ferðum þeirra Haralds konungs.



Maður hét Kali, ungur að aldri og nokkuð skyldur Einari,
illgjarn og öfundsjúkur, háðsamur og hávaðamikill. Hann var
skósveinn Einars og hafði lengi þjónað honum. Kali var hagur
vel á gull og silfur. Því var hann kallaður Gyllingar-Kali.
Marga menn rægði hann við Einar og var sundurgerðamaður
mikill í orðum, bæði sundurlausum og samföstum. Hann hafði
mjög í háði við Halldór og bað aðra menn yrkja um hann en
engi varð til þess. Því fékkst Kali í að flimta hann. Halldór
varð þess var.



Og einhvern dag gekk hann til skemmu Bergljótar. Og er hann
kemur að dyrunum heyrir hann þar inn hámælgi mikla. Var þar
inni Kali og margir menn aðrir. Þeir bera þá fram fyrir
húsfreyju hróp það er Kali hafði kveðið um Halldór.



Bergljót bað þá þegja og sagði svo: "Það er illa gert að fást
á ókunna menn með hrópyrðum og háðsemi og munu þér tröll toga
tungu úr höfði. Hefir Halldór meir verið reyndur að frækleik
en flestir menn aðrir í Noregi."



Kali mælti: "Ekki erum vér hræddir við hann mörlanda þó að
hann hafi mikil metorð af þér því að vér höfum spurt að hann
var settur í dýflissu út á Grikklandi og lá þar á ormshala
athafnarlaus og ekki megandi."



Halldór þoldi eigi þessi atyrði og hljóp inn í herbergið að
Kala og hjó hann banahögg. Og er Bergljót sá það bað hún
geyma dyranna svo að engi kæmist fyrr en henni líkaði.



Þá mælti Halldór: "Biðja vil eg yður húsfreyja að þér sjáið
eitthvert gott ráð fyrir mér þó að eg hafi nú eigi til þess
unnið."



Hún svarar: "Eg á marga frændur náskylda þá sem lendir menn
eru og veit eg víslega til hvers þeirra sem eg sendi þig að
sá tekur við þér fyrir mínar sakir."



Halldór mælti: "Hugsaðu svo fyrir að með engum manni vil eg á
laun vera haldinn sem illræðismenn."



Bergljót segir: "Þeir munu þó fáir menn í Noregi utan sjálfur
Haraldur að dugi að halda þig fyrir Einari ef hann vill eftir
þér leita því að hann mun vís verða hvar þú kemur niður. Er
og til ráð annað," segir hún, "og er það þó eigi hættulaust."



Halldór mælti: "Hvert er það?"



Hún svarar: "Að þú gangir nú þegar inn í stofu sakir þess að
nú eru tvö víti á hendi, annað vígsvítið en annað borðavíti
því að þú komst eigi til borðs með öðrum mönnum því að nú
sitja menn undir borðum. Máttu nú ganga inn fyrir Einar og
segja honum tíðindi og færa honum höfuð þitt og friðast svo
við hann. En ef hann vill þér eigi grið gefa við það þá mun
eigi hægt að forða þér fyrir honum."



Síðan gekk Halldór inn fyrir Einar og mælti: "Eigi hefi eg
oft víttur verið um borðatilgöngu. Hefir nú og svo til borið
að eg hefi eigi verið sýslulaus."



Einar svarar: "Segir þú víg Kala frænda míns?"



Halldór svarar: "Þeirrar sakar em eg sannur og því vil eg nú
færa þér höfuð mitt og ger af slíkt er þér líkar."



"Víg þetta er þig hefir hent er hið versta og mér nær hoggið
því að Eindriði son minn mundi svo einn annar drepinn vera að
mér mundi meira að þykja."



Halldór svarar: "Það manntjón væri ólíkt."



Einar mælti: "Bræður Kala munu þar sjá til sæmdar er eg em um
eftirmál og vígsbætur fyrir hann. Er það og lítilmannlegt að
eg láti mér svo þykja sem einn hundur hafi drepinn verið þar
sem Kali var. Mun það og þá leiðast öðrum að vinna slík
illvirki ef þessa er hefnt eftir maklegleikum. En þó mun hæfa
að hafa heilræði Magnúss konungs Ólafssonar frænda míns að
gefa upp reiðina fyrst í stað því að oft þykir þá annað
sannara er hún líður af en áður hefir fram farið. Nú skaltu
Halldór fyrst fá mér sverð þitt því að eg vil það hafa."



Halldór svarar: "Hvað þarf eg að láta laus vopn mín?"



"Því vil eg hafa sverð þitt," segir Einar, "að eg sé ef
nokkuð er þröngt þínum kosti að þú munt verja hendur þínar
meðan þú mátt ef þú hefir vopn að vega með og er þá eigi
óvænt að svo fari fleiri sem Kali hefir farið og mun eg þá
eigi betur við una. En það mun þó saman fara ef þú ert sóttur
að þú munt hafa mann fyrir þig nema þú hafir fleiri en þó mun
eg yfir þig vinna að síðustu. Gakk nú fyrst til borðs með mér
en eg mun síðan upp segja víti þín en engum friði heiti eg
þér álengdar."



Halldór gerði svo, át og drakk með Einari sem hann ætti ekki
um að vera og af hendi fékk hann sverðið. Tók Einar með því.
Vinir Halldórs báðu hann brott fara ef hann mætti.



Halldór svarar: "Ekki mun eg leynast frá Einari þar sem eg
hefi áður gengið á vald hans."



Og er Halldór var mettur gekk hann fyrir Einar og spurði
hvern hann vildi gera hans hlut.



Einar svarar: "Síðar muntu enn það vita."



Halldór gekk þá í brott og sagði Bergljótu hvar komið var.



Hún svarar: "Eigi vænti eg að Einar láti drepa þig. En ef
hann vill níðast á þér þá heiti eg þér því að þá skal enn
meirum tíðindum gegna."



Og þenna sama dag stefnir Einar fjölmennt þing.



Hann stóð upp á þinginu og sagði svo: "Eg vil nú skemmta yður
og segja frá því er fyrir löngu var að eg var á Orminum langa
með Ólafi konungi Tryggvasyni.



Eg var þá átján vetra og fyrir lög fram tekinn á Orminn því
að engi skyldi á honum vera yngri maður en tvítugur og engi
eldri en sextugur. Kolbirni hinum upplenska var þá skipað hjá
mér og öðrum manni er Björn hét og var kallaður Flesmu-Björn.
Hann var gamall maður og þó hraustur. Níu voru þeir menn er
brott komust af Orminum en frá oss þremur kumpánum vil eg
nokkuð segja að vér hljópum fyrir borð af Orminum síðan
konungurinn var horfinn með ljósi því er yfir honum skein. En
Danir, menn Sveins konungs, tóku oss og færðu konungi en hann
flutti oss til Jótlands og vorum þar upp leiddir og settir á
eina lág og þar fjötraðir. En sá er oss varðveitti vildi selja
oss í þrældóm. Hann hét oss afarkostum og limaláti ef vér
vildum eigi þjást og í þeim skógi sátum vér þrjár nætur.
Þessi maður er oss varðveitti lét móts kveðja og þangað kom
mikið fjölmenni og á því móti sást einn mikill maður svo búinn
sem munkur í blám kufli og hafði grímu fyrir andliti.



Þessi maður gekk að oss kumpánum og mælti til meistara vors:
"Viltu selja mér þann hinn gamla þrælinn?"



Hann svarar: "Hvað skal þér gamall þræll og nenningarlaus?"



Grímumaður svarar: "Hann mun þá ódýrastur af öllum þrælunum?"



"Já," segir meistari vor, "hann skal víst ódýrastur."



"Met hann þá," segir grímumaður.



Meistari mat hann fyrir tólf aura silfurs.



Grímumaður svarar: "Dýr þykir mér þá þrællinn með því að eg
sé hann mjög gamlan og forverkslítinn. Er og eigi ólíkt að
hann lifi skamma stund. Mun eg gefa fyrir hann mörk silfurs
ef þú vilt því kaupa."



Þá gekk grímumaður að mér," segir Einar, "og spurði hver mig
hefði keyptan.



"Ekki hefi eg seldan hann," segir meistari, "en þó má hann
seljast."



"Hversu dýr skal hann?" segir grímumaður.



Meistari svarar: "Helsti mun þér hann dýr þykja. Kaup hann
fyrir þrjár merkur silfurs ef þér líkar."



"Alldýr mun þá vera," segir kuflmaður, "en sjá þykist eg að
frændur hans og vinir mundu gjarna kaupa hann við þvílíku
verði ef hann væri í sínu landi."



"Eg vissi það," segir meistari, "að þér mundi ægja að kaupa
hann svo dýrt sem eg mat."



Síðan sneri kuflmaður í brott og fór víða um torgið ýmsa
gripi falandi og með því að hann fékk enga keypt fór hann
aftur til vor svo segjandi: "Nú var eg á torgi og því að mér
var ekki kauplegt kom eg enn hingað. Vil eg nú fala þann
þrælinn er eg hefi áður eigi orði á komið því að eg sé, svo
miklir menn og styrkir sem þeir eru, að þeir munu vinna þrír
ekki svo lítið ef þeir vilja. Sýnist mér því ráð að kaupa þá
alla."



Geymari vor svarar: "Þó þarftu mikils við um mannsman ef þú
kaupir einn þrjá þræla."



"Það skaltu þó vita," segir kuflmaður, "að eg hefi haft eigi
færri húskarla."



Kolbjörn var metinn fyrir tvær merkur.



"Dýrir eru þrælarnir," segir kuflmaður, "og veit eg eigi
gjörla hvað fram fer um peninga mína hvort þeir munu vinnast
til verðs þeirra."



Hann steypir þá silfrinu í kyrtilskaut hans og mælti: "Hafðu
nú þetta fyrir tölu þína og vænti eg að eigi muni þetta
minna."



Og síðan lætur kuflmaður leysa oss og þótti oss þá batna um
vorn kost. Grímumaður gekk þá í brott í skóginn og bað oss
fylgja sér. Og er vér komum fram í eitt rjóður spurði eg hann
að nafni.



Hann svarar: "Ekki varðar þig að vita nafn mitt. En það kann
eg þér segja að eg hefi séð þig eitt sinn fyrr og alla yður."



Eg vildi þó vita hvers þræll eg skyldi vera "en ef þú vilt
gefa oss frelsi þá vildum vér og vita hverjum vér eigum það
að launa."



"Eigi muntu þess vís verða þenna dag," segir hann, "hvað eg
heiti."



Þá svara eg," segir Einar: ""Verið mundi það þó hafa að eg
mundi ráðið hafa við einn mann og aðrir tveir með mér þó að
Danir ætli það eigi."



Kuflmaðurinn svarar og kippti upp líttað hettinum: "Sjá má að
eg þjái yður ekki enda mun eg í engu vera yðvar
nauðungarmaður þó að þér séuð þrír en eg sé einn. Nú liggur
hér stígur er eg mun vísa yður til skips þess er Norðmenn
eiga og munu þeir taka við yður og flytja yður til Noregs. En
þú Björn," segir hann, "skipt fjárhlut þínum og gef hann svo
sem þú hyggur sálu þinni hjálpvænlegast því að þú munt eigi
hálfum mánuði lengur lifa síðan þú kemur heim til bús þíns.
En þú Kolbjörn munt koma heim á Upplönd og munt þykja
merkilegur maður hvar sem þú ert. En þú Einar," segir hann,
"munt verða yðvar mestur maður og elstur og vera um fram
flesta menn aðra í mörgu lagi. Muntu og fá Bergljótar dóttur
Hákonar Hlaðajarls og búa á Gimsum og halda virðingu til
dauðadags. En af þér einum vil eg laun hafa fyrir lífgjöfina
og frelsið því að þér einum hygg eg að mest þyki vert ef þú
ert eigi þræll."



Eg svaraði að óhægra væri að launa er eg vissi eigi hverjum
að gjalda var eða hverju launa skyldi.



Hann svarar: "Því skaltu launa ef nokkur maður gerir svo mjög
í móti þér að fyrir víst viljir þú hafa hans líf og hefir þú
vald yfir honum þá skaltu eigi minna frelsi gefa honum en eg
gef þér nú. En það mun inndælt því að fáir munu gera í móti
þér sakir ríkdóms þíns og vinsælda."



Og svo talandi lyfti kuflmaðurinn grímunni frá andliti sér og
mælti: "Hvað hyggið þér hverjir hér ríða um skóginn og munu
ætla að grípa oss?"



En er vér litum allir til og vildum sjá mennina. En er vér
litum aftur var grímumaður horfinn og síðan sáum vér hann
aldrei. En þenna mann kenndum vér allir fullgjörla að þar var
Ólafur konungur Tryggvason því að þegar fyrra sinn er hann
kippti kuflshettinum kenndi eg hann fyrir víst. En síðan hann
lyfti upp grímunni og sýndi oss sína ásjónu kenndum vér hann
allir og töluðum vor í milli að oss hafði mjög óhyggilega til
tekist er vér höfðum eigi hendur á honum en þó tjáði oss þá
ekki að sakast um orðinn hlut. Síðan gengum vér þann stíg til
sjóvar sem hann vísaði oss og fundum þar Norðmanna skip og
fór allt eftir því sem hann hafði oss fyrir sagt um vora ævi.



Nú em eg skyldur," segir Einar, "að gera það er Ólafur
konungur bað mig. Sýnist mér nú og eigi annað líkara en hann
hafi fyrir þér beðið Halldór því að þú ert nú á mínu valdi."



Og áður Einar hafði lokið sögu sinni var Bergljót kona hans
komin á þingið með mikla sveit manna. Ætlaði hún að þeir menn
skyldu berjast við Einar og verja Halldór ef hann vildi honum
eigi grið gefa. Síðan bætti Einar víg Kala frændum hans en
hélt vináttu við Halldór. En Eilíf sendi Halldór til Íslands
og sætti hann áður við Harald konung og var Halldór með
konungi lengi síðan. En sú var sök Eilífs að hann hafði
drepið hirðmann Haralds konungs og hafði hann því reiði á
honum.



sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.