Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

GullÁsuÞ ch. 1

Gull-Ásu-Þórðar þáttr 1 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (GullÁsuÞ ch. 1)

Anonymous íslendingaþættirGull-Ásu-Þórðar þáttr
1

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Um daga Eysteins konungs Magnússonar berbeins kom utan af
Íslandi sá maður er Þórður hét, austfirskur að ætt og
félítill. Hann var gervilegur maður og föðurbetringur og hélt
sínum hluta fyrir jafnaðarmönnum sínum. Skáld var hann gott.



Og sem hann kom í bæinn var fátt til forgiftar að taka. Hann
kom um kveldið í garð konu þeirrar er Ása hét. Hún var
ættstór og auðug mjög. Hún var náskyld þeim Bjarkeyingum og
Víðkunni Jónssyni og öðrum frændum þeirra. Hún tók við Þórði
um stund. Hann skemmti vel og kunni gott umstilli á
skapsmunum Ásu. Vel rættist um vist hans og var hann þar um
veturinn með kærleikum og æ því meira sóma sem hann var
lengur og mæltu því margir menn að með þeim væri hin
nákvæmasta vinátta. Sátu þau löngum saman á einmæli. Ása var
ekki ung kona.



Um vorið sagði hún Þórði að henni hefði vel til hans líkað
"og mun eg fá þér fé nokkuð til Englandsfarar og eigum bæði
saman ef nokkuð á grónar."



Og svo gerir hann. Tekst honum vel kaupferðin, kom heim að
hausti og sat heima um veturinn. Svo fer nokkur sumur. Gengur
mjög í vöxt efni þeirra og gerist því meiri hans frami sem
hann var lengur með Ásu. Er hann nú kallaður Gull-Ásu-Þórður.
Frændum hennar þótti óvirðing í þessu og lögðu á Þórð óþokka
mikinn en hann lætur sem hann heyri ekki.



Það var einn dag að Ása kom að máli við Þórð og mælti:
"Hingað er von Víðkunns frænda míns. Vil eg að þú leitir
honum allrar virðingar í þjónustu þinni og þætti mér ráð þú
yrtir um hann drápu og bærir fram áður hann fer í brottu og
sæmdir hann mjög í kvæðinu því að höfðingjum flestum þykir
lofið gott en við munum þurfa að stilla til ef honum skal
allvel líka en þér þó ekki minna á liggur nokkurum orðum. En
þú ert hólpinn ef þú færð hans vináttu við hvern sem þú etur
kappi hér í Noregi."



Þórður kveðst mundu til hætta og yrkir síðan kvæðið. Eftir
það kemur Víðkunnur með mikla sveit manna og tekur sér
skytning.



Og einn dag gekk Þórður fyrir Víðkunn, kvaddi hann og mælti:
"Kvæði lítið hefi eg að færa yður er eg hefi kveðið og vil eg
þér hlýðið."



"Það skal vera," segir Víðkunnur, "og hefir þú fyrstur orðið
til að kveða um mig. Mun þér nokkuru skipta Þórður hvern veg
mér virðist kvæðið, og mun eg hlýða, því að ekki ann eg þér
svo mikið sem Ása frændkona mín."



Síðan hóf hann kvæðið og var það fimmtug drápa og var þetta
stefið:



Hart rýðr Hildar kerti,

hjálm í fólk gunna,

Jóans ættstuðill einart

allfróðr í styr þjóða.


Og sem úti var kvæðið lögðu margir lofsorð til en Víðkunnur
þakkaði mest og skipti skjótt skaplyndi við Þórð og gaf honum
gullhring er stóð mörk. Þórður lést eigi fé þurfa en beiðist
vináttu hans og því hét Víðkunnur og var hann út leiddur með
góðum gjöfum.



Líða nú stundir. Og eitt sumar er Þórður kom af Englandi
lagði hann upp í ána Nið. Eysteinn konungur var þá í bænum og
margt stórmenni með honum, Sigurður Hranason og Víðkunnur
Jónsson og Ingimar af Aski, hinn ríkasti maður og hinn mesti
ofsamaður. Hann hafði lagið í lægið áður en Þórður kom að.
Menn ræddu um að honum væri vænast að leggja upp í öðrum
stað. Þórður kvaðst ekki mundu til saka og lét vera kyrrt. Og
er þeir ræddu um þetta og ruddu skipið finnur Þórður eigi
stafntjaldið. Hann gengur þá á skip Ingimars og finnur þar
svein einn og hafði sá sveipað undir sig tjaldinu. Þórður
tekur sveininn með tjaldinu og rekur heim í garð sinn og
skipar upp síðan farmi sínum. Brátt kemur þessi saga fyrir
Ingimar og verður hann reiður mjög og gengur að garði Þórðar
og biður hann skjótt selja fram manninn.



Þórður segir svo: "Það mun varla hlýða að sleppa þjófnum" þó
að hann væri hans maður.



Ingimar svarar: "Ekki muntu Gull-Ásu-Þórður lengi halda mínum
mönnum eða gera þá að þjófum. Má eg þá og varla lendur maður
heita ef eg læt göngumann þinn draga mann af mér."



Þá svarar Þórður og kvað:



Nú tekr ýgr að ægja

ofrkúginn mér drjúgum.

Þinn hefr höldr of hlannað

hjaldrgegninn mig tjaldi.

Trautt mun eg lausan láta,

linnbóls gjafi, að sinni

vísan þjóf þótt vofi

von þín of hlut mínum.


Ingimar gengur þá í brott og er mjög reiður.



Ása bað Þórð senda eftir Víðkunni og reyna vináttumálin og
kvæðislaunin "því að þungt er að etja þar sem Ingimar er."



Þórður gerir nú svo og brást hann við hið besta og kvað
skylduferð og kemur í loftið til Þórðar með mikla sveit
manna. Eigi líður langt áður en þeir heyra gný mikinn og fer
þar Ingimar og biður Þórð lausan láta manninn ella mun hann
að sækja.



Víðkunnur mælti þá: "Það er sannlegast að mál þetta komi í
lögmanns dóm og hefir Þórður það að gert er hann átti er hann
batt þann er stolið hafði ella var hann sekur."



Ingimar mælti: ""Stingið mér hér í," kvað reka, hún stóð ein
saman, og Víðkunnur er kominn hér. Það er og mátulegra að
við eigum saman heldur en Þórður mágur þinn enda muntu ætla
að launa honum dræplinginn er hann flimti um þig" og snýr
þegar í brott.



Þá mælti Víðkunnur: "Nú skal senda til Sigurðar Hranasonar
vinar míns og biðja hann hér koma og ef hann hefir nokkur
mótmæli minnist hann hver honum dugði best þá er Finnar tóku
bú hans í Bjarkey."



Síðan fara þeir og segja orðsending hans.



Hann lét vel á komið þó að þeir Ingimar reyndu með sér "því
að þar þykist hvor öðrum meiri."



Þeir minntu hann þá ályktar Víðkunns.



Sigurður segir: "Satt var það að enginn dugði mér svo vel sem
hann og víst þykir honum varða að komið sé og stöndum upp."



Síðan gengu þeir til lofts Þórðar. Innan lítils tíma verða
þeir við mannsöfnuð varir um strætin því að lið Ingimars
hafði dreifst víða um bæinn. Kom þá hinn mikli flokkur allur
til lofts Þórðar.



Þá mælti Ingimar: "Nú munum við eftir leita manninum
Víðkunnur ef hann er eigi fram leiddur og er nú ekki betur en
fyrr."



Þá segir Sigurður: "Förum að vægilega Ingimar. Það er of
mikill óréttur ef þú brýtur hús á oss og rænir oss ofan á það
eftir konungs fanga. Munu menn ætla að hafa rétt af þér þótt
þú sért kappi mikill."



Ingimar mælti: "Eigi er hana að borgnara þótt hæna beri
skjöld, og kaupist nú þó mikið í er þið eruð í móti mér einum
og hvorutveggju þó lendur maður og hinn vaskasti. Og mun eg
enn frá hverfa en koma skal eg í þriðja sinn."



Eftir það sendir Sigurður menn til Eysteins konungs og biður
hann koma til með þeim "og segið honum svo, að í síðasta lagi
ætla eg að eg skildist við föður hans vestur á Írlandi."



Þeir koma og segja konungi orð Sigurðar en hann lét þeim
afburðarmönnum það eigi ofurefli tveimur að eiga við Ingimar.
Þeir sögðu konungi þá öll orð Sigurðar.



Konungur mælti þá: "Undir þykir honum þá að eg komi enda skal
það og vera."



Síðan fór konungur með mikið fjölmenni og hittir Sigurð. Litlu
síðar kemur Ingimar og hefir nú fjögur hundruð manna og gengur
síðan að loftinu og lætur nú meiri von að þeim mun saman
lenda ef þeir láta eigi lausan manninn.



Konungur segir þá: "Eigi sómir þér Ingimar að gera hér svo
mikla styrjöld í bænum eða draga að mönnum stóra flokka og
reisa svo hernað í landinu og munum vér eigi upp gefast að
óreyndu."



Ingimar segir: ""Úrt járn," kvað kerling og átti kníf deigan.
Nú gerast mikil efnin að konungur sjálfur er til kominn að
skakka með oss og mun eg enn verða frá að hverfa að sinni."



Og svo varð. Síðan lætur konungur kveðja þings. Var þá þangað
leiddur þjófurinn og var tjaldið á baki honum. Síðan var hann
dæmdur og eftir það upp festur út á Eyri.



Þá mælti konungur: "Hvað ætlar þú nú Ingimar hvað þjófurinn
mun hafa?"



"Það vil eg ætla," segir Ingimar, "að þessi muni gott hafa
maðurinn er drepinn var fyrir litlar sakir."



"Nei," segir konungur, "hann mun hafa helvíti."



Ingimar mælti: "Mislagðar eru þér hendur konungur er þú
dregur fram hluta mörlandans en svívirðir sjálfs þín menn en
hefir enga framkvæmd né hug til að hefna föður þíns er
drepinn var á Írlandi sem hundur á hræi nýbitnu. Og það hygg
eg að hann hafi helvíti er hann er, er barðist til þess er
hann átti eigi í."



Og eftir það sneri hann til skipa sinna og fór austur og drap
þrjá konungsmenn í Víkinni. Síðan fór hann suður til
Danmerkur og staðfestist þar.



En það er sagt af Þórði að hann átti síðan Ásu með ráði
Víðkunns og konungs og þótti vera hinn vaskasti maður og var
hann í Noregi til deyjanda dags.



Og lýkur hér þætti Gull-Ásu-Þórðar.



sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.