Grettis saga Ásmundarsonar 77 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Gr ch. 77)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þetta sumar á alþingi töluðu frændur Grettis mart um sekt
hans og þótti sumum sem hann hefði úti sekt sína ef hann
hefði mikið af hinu tuttugasta ári. En þeir sem sakir áttu
við hann vildu það eigi og kölluðu hann margt útlegðarverk
gert hafa síðan og þótti sekt hans eiga að vera því lengur.
Þá var nýr lögmaður tekinn, Steinn Þorgestsson, Steinssonar
mjögsiglanda, Þórissonar haustmyrkurs. Móðir Steins lögmanns
var Arnóra dóttir Þórðar gellis. Steinn var vitur maður. Hann
var þá beiddur úrskurðar en hann bað þá rannsaka hvort það
væri hið tuttugasta sumar síðan hann var sekur ger. En það
varð svo.
Þá gekk að Þórir úr Garði og leitaði að færa í alla trega þá
er mætti og gat hann fundið að Grettir hafði verið einn vetur
út hér svo að hann var ósekur og urðu þá nítján vetur þeir
sem hann hafði í sekt verið.
Þá sagði lögsögumaður að engi skyldi lengur í sekt vera en
tuttugu vetur alls þó að hann gerði útlegðarverk í þeim tímum
"en fyrr mun eg öngvan úr sekt segja."
Og af þessu eyddist sýkn að sinni en þótti nú að vísu ganga
að hann mundi sýkn vera á öðru sumri.
Þetta líkaði illa Skagfirðingum ef Grettir kæmist úr
sektinni, báðu nú Þorbjörn öngul gera annaðhvort, leggja
aftur eyjuna eða drepa Gretti. En honum þótti vandi á höndum
því að hann kunni eigi ráð til að vinna Gretti en vildi þó
halda eyjunni. Leitaði hann allra bragða nú að stíga yfir
Gretti, annaðhvort með harðfengi eða brögðum eða á hvern hátt
er hann gæti það gert.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.