Gísla saga Súrssonar 10 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Gísl ch. 10)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Nú líða misserin af hendi og kemur að fardögum. Þá heimtir
Þorkell Gísla bróður sinn á tal við sig og mælti: "Svo er
háttað, frændi," segir hann, "að mér er ráðabreytni nokkur í
hug og í skapi; en því víkur svo við að eg vil að við skiptum
fé okkar og vil eg ráðast til búlags með Þorgrími, mági
mínum."
Gísli svarar: "Saman er bræðra eign best að líta og að sjá;
að vísu er mér þökk á að kyrrt sé og skiptum engu."
"Ekki má svo lengur fram fara," segir Þorkell, "að við eigum
búlag saman því að á því verður stórmikill skaði þar sem þú
hefur jafnan einn haft önn og erfiði fyrir búinu en eg tek
til einskis höndum, þess sem þrifnaður sé í."
"Tel þú nú ekki að því," segir Gísli, "meðan eg geri ekki orð
á; höfum við nú hvorttveggja reynt að margt hefur verið um
með okkur og fátt."
Þorkell mælti: "Ekki er undir hvað um er talað, skipta skal
fénu að vísu; og fyrir því að eg beiði skiptis þá skaltu hafa
bólstað og föðurleifð okkar en eg skal hafa lausafé."
"Ef ekki skal öðru við koma en við skiptum þá ger þú
annaðhvort því að eg hirði eigi hvort eg geri að skipta eða
kjósa."
Svo lauk að Gísli skipti en Þorkell kaus lausafé en Gísli
hefur land. Þeir skiptu og ómegð; það voru börn tvö; hét
sveinninn Geirmundur en Guðríður mærin og var hún með Gísla
en Geirmundur með Þorkatli. Fer Þorkell til Þorgríms mágs
síns og býr við hann; en Gísli hafði bú eftir og saknar
einskis í að nú sé búið verra en áður. Og líður nú svo
sumarið og kemur að veturnóttum.
Það var þá margra manna siður að fagna vetri í þann tíma og
hafa þá veislur og veturnáttablót en Gísli lét af blótum
síðan hann var í Vébjörgum í Danmörku en hann hélt þó sem
áður veislum og allri stórmennsku. Og nú aflar hann til
veislu mikillar þá er svo líður stundum sem áður var getið.
Hann býður til veisluþeim báðum nöfnum, Þorkatli Eiríkssyni
og Þorkatli auðga og mágum sínum, Bjartmarssonum og mörgum
öðrum vinum og félögum.
Og þann dag er menn koma þar tekur Auður til orða: "Það er
satt að segja að nú þykir mér eins manns vant, þess er eg
vildi að hér væri."
"Hver er sá?" kvað Gísli.
"Það er Vésteinn, bróðir minn; hann myndi eg kjósa til að
njóta hér fagnaðar með oss."
Gísli mælti: "Annan veg er mér þetta gefið því eg vildi
gjarna gefa til að hann kæmi hér nú eigi."
Og fellur þetta þeirra tal þar niður.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.