Finnboga saga ramma 25 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Finnb ch. 25)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Um morguninn þegar dagur var fór hún og sagði frændum sínum
þetta víg bónda síns. Þeir Brettingssynir urðu við þetta
stórlega reiðir, búa þegar mál til og fara á Eyri og lýsa
vígi á hendur Finnboga og biðja hann bæta fé fyrir.
En Finnbogi kveðst þeim engu vildu til svara "því að hann
hefir áður mælt sér til óhelgi."
Síðan stefndu þeir Finnboga um víg Uxa. Eftir það riðu þeir
til Eyjafjarðar á fund Eyjólfs Valgerðarsonar er þá þótti
mestur höfðingi í Eyjafirði. Hann var og skyldur þeim
bræðrum, og báðu þeir hann liðveislu mót Finnboga og þeim
frændum. Hann hét þeim sínu fulltingi. Ríða nú heim og
þykjast nú hafa fullnað úr málum, gerast nú örorðir og
illmálgir til Finnboga. Hann lætur sem hann viti það eigi
hvað þeir mæla. Síðan fundust þeir frændur, Finnbogi og
Þorgeir. Þá segir Finnbogi honum það sem í hafði gerst.
Þorgeir kallaði betur vera að hann hefði bætt nokkuru, kvað
eigi gott að leggja sæmd sína fyrir slík mál er þó eru engis
verð, fara nú til þings og fjölmenna hvorirtveggju.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.