Eyrbyggja saga 59 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Eb ch. 59)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Snorri goði tók við málum Álfs hins litla öllum á hendur þeim
Óspaki og gerði þá Óspak alla sekja á Þórsnessþingi. Eftir
þingið fór Snorri goði heim í Tungu og sat heima til
féránsdóms. Fór hann þá norður í Bitru með fjölmenni. Og er
hann kom þar var Óspakur á brottu með allt sitt. Höfðu þeir
farið norður á Strandir fimmtán saman og höfðu tvö skip. Þeir
voru á Ströndum um sumarið og gerðu þar margar óspektir. Þeir
bjuggust fyrir norður í Þaralátursfirði og söfnuðu að sér
mönnum. Þar kom til þeirra sá maður er Hrafn hét og var
kallaður víkingur. Hann var einn illgerðamaður og hafði legið
úti á Norðurströndum. Þeir gerðu þar mikið hervirki í ránum
og manndrápum, voru þar allir samt framan til veturnátta. Þá
söfnuðust þeir saman Strandamenn, Ólafur Eyvindarson frá
Dröngum og aðrir bændur með honum, og fóru að þeim. Höfðu
þeir þá enn virki um bæ sinn þar í Þaralátursfirði og voru þá
saman nær þrír tigir manna. Þeir Ólafur settust um virkið og
þótti torsóttlegt vera. Töluðust þeir þá við og buðu
illvirkjarnir að fara brott af Ströndum og gera þar engar
óspektir þaðan af enda skyldu þeir fara frá virkinu. En með
því að þeim þótti eigi í hendi liggja að eiga við þá, þá tóku
þeir þenna kost og bundu það svardögum með sér. Fóru bændur
við það heim.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.