Egils saga Skalla-Grímssonar 3 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Eg ch. 3)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Haraldur, sonur Hálfdanar svarta, hafði tekið arf eftir föður
sinn í Vík austur; hann hafði þess heit strengt að láta eigi
skera hár sitt né kemba, fyrr en hann væri einvaldskonungur
yfir Noregi; hann var kallaður Haraldur lúfa. Síðan barðist
hann við þá konunga, er næstir voru, og sigraði þá, og eru
þar langar frásagnir; síðan eignaðist hann Upplönd. Þaðan fór
hann norður í Þrándheim og átti þar margar orustur, áður hann
yrði einvaldi yfir öllum Þrændalögum.
Síðan ætlaðist hann að fara norður í Naumudal á hendur þeim
bræðrum, Herlaugi og Hrollaugi, er þá voru konungar yfir
Naumudal. En er þeir bræður spurðu til ferðar hans, þá gekk
Herlaugur í haug þann með tólfta mann, er áður höfðu þeir
gera látið þrjá vetur. Var síðan haugurinn aftur lokinn. En
Hrollaugur konungur veltist úr konungdómi og tók upp jarls
rétt og fór síðan á vald Haralds konungs og gaf upp ríki
sitt. Svo eignaðist Haraldur konungur Naumdælafylki og
Hálogaland; setti hann þar menn yfir ríki sitt.
Síðan bjóst Haraldur konungur úr Þrándheimi með skipaliði og
fór suður á Mæri, átti þar orustu við Húnþjóf konung og hafði
sigur; féll þar Húnþjófur. Þá eignaðist Haraldur konungur
Norðmæri og Raumsdal.
En Sölvi klofi, sonur Húnþjófs, hafði undan komist, og fór
hann á Sunnmæri til Arnviðar konungs og bað hann sér
fulltings og sagði svo:
"Þótt þetta vandræði hafi nú borið oss að hendi, þá mun eigi
langt til, að sama vandræði mun til yðvar koma, því að
Haraldur, ætla eg, að skjótt mun hér koma, þá er hann hefir
alla menn þrælkað og áþjáð, sem hann vill, á Norðmæri og í
Raumsdal. Munuð þér hinn sama kost fyrir höndum eiga, sem vér
áttum, að verja fé yðvar og frelsi og kosta þar til allra
þeirra manna, er yður er liðs að von, og vil eg bjóðast til
með mínu liði móti þessum ofsa og ójafnaði; en að öðrum kosti
munuð þér vilja taka upp það ráð, sem Naumdælir gerðu, að
ganga með sjálfvilja í ánauð og gerast þrælar Haralds. Það
þótti föður mínum vegur að deyja í konungdómi með sæmd heldur
en gerast undirmaður annars konungs á gamals aldri. Hygg eg,
að þér muni og svo þykja og öðrum þeim, er nokkurir eru borði
og kappsmenn vilja vera."
Af slíkum fortölum var konungurinn fastráðinn til þess að
safna liði og verja land sitt. Bundu þeir Sölvi þá samlag
sitt og sendu orð Auðbirni konungi, er réð fyrir Firðafylki,
að hann skyldi koma til liðs við þá. En er sendimenn komu til
Auðbjarnar konungs og báru honum þessa orðsending, þá réðst
hann um við vini sína, og réðu honum það allir að safna liði
og fara til móts við Mæri, sem honum voru orð til send.
Auðbjörn konungur lét skera upp herör og fara herboð um allt
ríki sitt; hann sendi menn til ríkismanna að boða þeim til
sín.
En er sendimenn konungs komu til Kveld-Úlfs og sögðu honum
sín erindi og það, að konungur vill, að Kveld-Úlfur komi til
hans með alla húskarla sína, Kveld-Úlfur svarar svo:
"Það mun konungi skylt þykja, að eg fari með honum, ef hann
skal verja land sitt og sé herjað í Firðafylki; en hitt ætla
eg mér allóskylt að fara norður á Mæri og berjast þar og
verja land þeirra. Er yður það skjótast að segja, þá er þér
hittið konung yðvarn, að Kveld-Úlfur mun heima sitja um þetta
herhlaup og hann mun eigi herliði safna og eigi gera sína þá
heimanferð að berjast móti Haraldi lúfu, því að eg hygg, að
hann hafi þar byrði nóga hamingju, er kon-ungur vor hafi eigi
krepping fullan."
Fóru sendimenn heim til konungs og sögðu honum erindislok
sín, en Kveld-Úlfur sat heima að búm sínum.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.