Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Eg ch. 16

Egils saga Skalla-Grímssonar 16 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Eg ch. 16)

Anonymous íslendingasögurEgils saga Skalla-Grímssonar
151617

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Þórólfur fór um sumarið suður til Þrándheims á fund Haralds
konungs og hafði þar með sér skatt allan og mikið fé annað og
níu tigu manna og alla vel búna. En er hann kom til konungs,
var þeim skipað í gestaskála og veitt þeim hið
stórmannlegasta.



Eftir um daginn gekk Ölvir hnúfa til Þórólfs, frænda síns;
töluðust þeir við; sagði Ölvir, að Þórólfur var þá hrópaður
mjög og konungur hlýddi á slíkar fortölur.



Þórólfur bað Ölvi byrja mál sitt við konung - "því að eg
mun," sagði hann, "vera skammtalaður fyrir konungi, ef hann
vill heldur trúa rógi vondra manna en sannindum og einurð, er
hann mun reyna að mér."



Annan dag kom Ölvir til móts við Þórólf og sagði, að hann
hefði rætt mál hans við konung. "Veit eg nú eigi," sagði
hann, "gerr en áður, hvað honum er í skapi."



"Eg skal þá sjálfur ganga til hans," segir Þórólfur.



Gerði hann svo, gekk til konungs, þá er hann sat yfir
matborði, og er hann kom inn, heilsaði hann konungi; konungur
tók kveðju hans og bað Þórólfi gefa að drekka.



Þórólfur sagði, að hann hafði þar skatt þann, er konungur
átti, er kominn var af Finnmörk - "og enn fleiri hluti hefi
eg til minningar við yður, konungur, þá er eg hefi yður að
færa; veit eg, að því mun mér vera öllu best varið, er eg
hefi gert til þakka yðvarra."



Konungur segir, að ekki mátti hann vænta að Þórólfi nema góðs
eins - "því að eg er engis," segir hann, "annars af verður;
en þó segja menn nokkuð tvennt til, hversu varfær þú munt um
vera, hvernig mér skal líka."



"Eigi er eg þar fyrir sönnu hafður," segir Þórólfur, "ef
nokkurir segja það, að eg hafi ótrúleika lýst við yður,
konungur. Hygg eg, að þeir muni vera þínir vinir minni en eg,
er slíkt hafa upp borið fyrir þér; en hitt er ljóst, að þeir
munu vilja vera óvinir mínir fullkomnir, en það er og líkast,
að þeir komist þar að keyptu, ef vér skulum einir við
eigast."



Síðan gekk Þórólfur á brott; en annan dag eftir greiðir
Þórólfur skattinn af hendi, og var konungur viðstaddur; og er
það var allt greitt, þá bar Þórólfur fram bjórskinn nokkur og
safala, sagði, að það vill hann gefa konungi.



Margir mæltu, er þar voru hjá staddir, að það var vel gert og
var vináttu fyrir vert. Konungur sagði, að Þórólfur hafði þar
sjálfur sér laun fyrir skapið. Þórólfur sagði, að hann hefði
með trúleik gert allt það, er hann kunni, til skaps konungs -
"og ef enn líkar honum eigi, þá mun eg fá ekki að gert. Var
konungi það kunnugt, þá er eg var með honum og í hans sveit,
hverja meðferð eg hafði, en það þykir mér undarlegt, ef
konungur ætlar mig nú annan mann en þá reyndi hann mig."



Konungur segir: "Vel fórstu, Þórólfur, með þínum háttum, er
þú varst með oss; ætla eg það sé enn best af að gera, að þú
farir til hirðar minnar; tak við merki mínu og ver fyrir
öðrum hirðmönnum; mun þá engi maður rægja þig, ef eg má yfir
sjá nótt og dag, hverjar meðferðir þú hefir."



Þórólfur sá til beggja handa sér; þar stóðu húskarlar hans;
hann mælti: "Trauður mun eg af hendi láta sveit þessa; muntu
ráða, konungur, nafngiftum við mig og veislum þínum, en
sveitunga mína mun eg ekki af hendi láta, meðan mér endast
föng til, þótt eg véli um mína kosti eina. Er hitt bæn mín og
vilji, að þér, konungur, farið að heimboði til mín og heyrið
þá orð þeirra manna, er þú trúir, hvert vitni þeir bera mér
um þetta mál; gerið þá eftir, sem yður finnst sannindi til."



Konungur svarar og segir, að eigi mun hann oftar veislu
þiggja að Þórólfi. Gekk Þórólfur þá í brott og bjóst síðan
til heimferðar.



En er hann var í brott farinn, þá fékk konungur í hönd
Hildiríðarsonum sýslu þá á Hálogalandi, er áður hafði
Þórólfur haft, og svo finnferð; konungur kastaði eigu sinni á
bú í Torgum og allar þær eignir, er Brynjólfur hafði átt;
fékk það allt til varðveislu Hildiríðarsonum.



Konungur sendi menn með jartegnum á fund Þórólfs að segja
honum þessa tilskipan, sem hann hafði gert. Síðan tók
Þórólfur skip þau, er hann átti, og bar þar á lausafé allt,
það er hann mátti með fara, og hafði með sér alla menn sína,
bæði frelsingja og þræla; fór síðan norður á Sandnes til bús
síns; hafði Þórólfur þar eigi minna fjölmenni og eigi minni
rausn.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.