Egils saga Skalla-Grímssonar 20 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Eg ch. 20)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Maður hét Yngvar, ríkur og auðugur; hann hafði verið lendur
maður hinna fyrri konunga, en síðan er Haraldur kom til
ríkis, settist Yngvar heima og þjónaði ekki konungi. Yngvar
var maður kvongaður og átti dóttur, er hét Bera; Yngvar bjó í
Fjörðum; Bera var einbirni hans og stóð til arfs eftir hann.
Grímur Kveld-Úlfsson bað Beru til handa sér, og var það að
ráði gert. Fékk Grímur Beru þann vetur, er þeir Þórólfur
höfðu skilist áður um sumarið; var Grímur þá hálfþrítugur að
aldri og var þá sköllóttur; síðan var hann kallaður Skalla-Grímur.
Hann hafði þá forráð öll fyrir búi þeirra feðga og
tilöflun alla, en þó var Kveld-Úlfur hress maður og vel fær.
Margt höfðu þeir frelsingja með sér og marga þá menn, er
heima þar höfðu upp vaxið og voru nær jafnaldrar Skalla-Gríms;
voru þeir margir afreksmenn miklir að afli, því að
Kveld-Úlfur og þeir feðgar völdu menn mjög að afli til
fylgdar við sig og tömdu við skaplyndi sitt.
Skalla-Grímur var líkur föður sínum á vöxt og að afli, svo og
að yfirlitum og skaplyndi.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.