Egils saga Skalla-Grímssonar 38 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Eg ch. 38)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þórólfur Skalla-Grímsson bjóst eitt sumar til kaupferðar;
ætlaði þá, sem hann gerði, að fara til Íslands og hitta föður
sinn. Hann hafði þá lengi á brottu verið; hann hafði þá
ógrynni fjár og dýrgripi marga.
En er hann var búinn til ferðar, þá fór hann á fund Eiríks
konungs; en er þeir skildust, seldi konungur í hendur Þórólfi
öxi, er hann kveðst gefa vilja Skalla-Grími; öxin var
snaghyrnd og mikil og gullbúin, upp skellt skaftið með
silfri, og var það hinn virðilegasti gripur.
Þórólfur fór ferðar sinnar, þegar hann var búinn, og
greiddist honum vel og kom skipi sínu í Borgarfjörð og fór
þegar bráðlega heim til föður síns; varð þar fagnafundur
mikill, er þeir hittust. Síðan fór Skalla-Grímur til skips
móti Þórólfi, lét setja upp skipið, en Þórólfur fór heim til
Borgar með tólfta mann.
En er hann kom heim, bar hann Skalla-Grími kveðju Eiríks
konungs og færði honum öxi þá, er konungur hafði sent honum.
Skalla-Grímur tók við öxinni, hélt upp og sá á um hríð og
ræddi ekki um; festi upp hjá rúmi sínu.
Það var um haustið einn hvern dag að Borg, að Skalla-Grímur
lét reka heim yxn mjög marga, er hann ætlaði til höggs; hann
lét leiða tvo yxn saman undir húsvegg og leiða á víxl; hann
tók hellustein vel mikinn og skaut niður undir hálsana. Síðan
gekk hann til með öxina konungsnaut og hjó yxnina báða senn,
svo að höfuðið tók af hvorumtveggja, en öxin hljóp niður í
steininn, svo að munnurinn brast úr allur og rifnaði upp í
gegnum herðuna. Skalla-Grímur sá í eggina og ræddi ekki um;
gekk síðan inn í eldahús og steig síðan á stokk upp og skaut
öxinni upp á hurðása, lá hún þar um veturinn.
En um vorið lýsti Þórólfur yfir því, að hann ætlaði utan að
fara um sumarið. Skalla-Grímur latti hann, sagði, að þá var
gott heilum vagni heim að aka; "hefur þú," sagði hann, "farið
fremdarför mikla, en það er mælt, er ýmsar verður, ef margar
fer; tak þú nú hér við fjárhlut svo miklum, að þú þykist
verða mega gildur maður af."
Þórólfur sagði, að hann vill enn fara einhverja ferð, "og á
eg nauðsynleg erindi til fararinnar; en þá er eg kem út öðru
sinni, mun eg hér staðfestast; en Ásgerður, fóstra þín, skal
fara utan með mér á fund föður síns; bauð hann mér um það, þá
er eg fór austan."
Skalla-Grímur kvað hann ráða mundu "en svo segir mér hugur
um, ef við skiljumst nú, sem við munum eigi finnast síðan."
Síðan fór Þórólfur til skips síns og bjó það; en er hann var
albúinn, fluttu þeir út skipið til Digraness, og lá þar til
byrjar; fór þá Ásgerður til skips með honum.
En áður Þórólfur fór frá Borg, þá gekk Skalla-Grímur til og
tók öxina ofan af hurðásum, konungsgjöfina, og gekk út með;
var þá skaftið svart af reyk, en öxin ryðgengin.
Skalla-Grímur sá í egg öxinni; síðan seldi hann Þórólfi
öxina. Skalla-Grímur kvað vísu:
Liggja ýgs í eggju,
ák sveigar kör deiga,
fox es illt í öxi,
undvargs flösur margar;
arghyrnu lát árna
aptr með roknu skapti;
þörfgi væri þeirar,
þat vas inga gjöf, hingat.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.