Egils saga Skalla-Grímssonar 47 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Eg ch. 47)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Haraldur Gormsson hafði þá tekið við ríki í Danmörk, en
Gormur, faðir hans, var þá dauður; landið var þá herskátt;
lágu víkingar mjög úti fyrir Danmörku. Áka var kunnugt í
Danmörku bæði á sjó og landi; spurði Egill hann mjög eftir,
hvar þeir staðir væru, er stór féföng myndu fyrir liggja.
En er þeir komu í Eyrarsund, þá sagði Áki, að þar var á land
upp kaupstaður mikill, er hét í Lundi, sagði, að þar var
févon, en líklegt, að þar myndi vera viðtaka, er bæjarmenn
væru. Það mál var upp borið fyrir liðsmenn, hvort þar skyldi
ráða til uppgöngu eða eigi; menn tóku þar allmisjafnt á,
fýstu sumir, en sumir löttu. Var því máli skotið til
stýrimanna. Þórólfur fýsti heldur uppgöngu. Þá var rætt við
Egil, hvað honum þótti ráð. Hann kvað vísu:
Upp skulum órum sverðum,
ulfs tannlituðr, glitra,
eigum dáð at drýgja
í dalmiskunn fiska;
leiti upp til Lundar
lýða hverr sem bráðast
gerum þar fyr setr sólar
seið ófagran vigra.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.