Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Eg ch. 76

Egils saga Skalla-Grímssonar 76 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Eg ch. 76)

Anonymous íslendingasögurEgils saga Skalla-Grímssonar
757677

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Egill fór til þess, er hann kom til Álfs, og var þar um nótt
í góðum beinleika; eftir um morguninn stóð hann upp fyrir
dag, bjóst þá til ferðar. Og er þeir sátu yfir dagverði, þá
kom þar Álfur bóndi. Hann mælti: "Snemma búist þér, Egill, en
hitt myndi mitt ráð að hrapa ekki ferðinni, sjást heldur
fyrir, því að eg ætla, að menn muni settir fyrir yður á
skóginn. eg hefi ekki menn til að fá þér til fylgdar, svo að
þér sé styrkur að, en það vil eg bjóða, að þú dveljist hér
með mér, þar til er eg kann það segja þér, að fært mun um
skóginn."



Egill segir: "Það mun ekki nema hégómi einn; mun eg fara veg
minn, sem eg hefi áður ætlað."



Þeir Egill bjuggust til farar, en Álfur latti og bað hann
aftur fara, ef hann yrði var við, að vegurinn væri troðinn,
sagði, að þar hefði enginn maður farið yfir skóginn austan,
síðan er Egill fór austur - "nema þessir hafi farið, er mér
er von, að yður vilji finna."



"Hvað ætlar þú, hversu margir þeir muni vera, ef svo er, sem
þér segið? Ekki erum vér uppnæmir, þótt nokkur sé liðsmunur."



Hann segir: "Eg var farinn fram til skógarins og húskarlar
mínir með mér, og komum við á mannafar, og lá sú slóð fram á
skóginn, og mundu þeir hafa verið margir saman; en ef þú
trúir eigi því, er eg segi þér, þá far þangað og sjá slóðina,
en snú aftur, ef þér sýnist sem eg segi þér."



Egill fór sína leið; og er þeir komu á veginn, þann er á
skóginn lá, þá sáu þeir þar bæði manna spor og hrossa; þá
mæltu förunautar Egils, að þeir skyldu aftur hverfa.



"Fara munum vér," sagði Egill; "þykir mér það ekki undarlegt,
þótt menn hafi farið um Eiðaskóg, því að það er alþýðuleið."



Síðan fóru þeir, og hélst ferillinn, og var þá fjöldi spora,
og er þeir koma þar, er leiðir skildi, þá skildi og slóðina
og var þá jafnmikil í hvorn stað.



Þá mælti Egill: "Nú þykir mér vera mega, að Álfur hafi satt
sagt; skulum vér nú búast um, svo sem oss sé von, að fundur
vor muni verða."



Síðan kasta þeir Egill af sér skikkjum og öllum lausaklæðum;
leggja þeir það í sleða. Egill hafði haft í sleða sínum
bastlínu mjög mikla, því að það er siður manna, er aka langar
leiðir, að hafa með sér lausataugir, ef að reiða þarf að
gera. Egill tók hellustein mikinn og lagði fyrir brjóst sér
og kviðinn; síðan rábendi hann þar að tauginni og vafði henni
sívafi og bjó svo allt upp um herðarnar. Eftir það fara þeir
leið sína.



Eiðaskógur er á þann veg, að mörk er stór allt að byggðinni
hvorritveggju, en um miðjan skóginn er víða smáviði og kjörr,
en sums staðar skóglaust með öllu.



Þeir Egill sneru leið hina skemmri, er yfir hálsinn lá; allir
höfðu þeir skjöldu og hjálma og höggvopn og lagvopn; Egill
fór fyrir þeim. Og er þeir fóru að hálsinum, þá var þar undir
niðri skógur, en skóglaust uppi á klifinu.



En er þeir voru komnir upp í klifið, þá hljópu sjö menn úr
skóginum og upp í kleifina eftir þeim og skutu að þeim. Þeir
Egill snerust við, og stóðu þeir jafnfram um þvera götuna; þá
komu aðrir menn ofan að þeim á hamarinn, og grýttu þeir þaðan
á þá, og var þeim það miklu hættara.



Þá mælti Egill: "Nú skuluð þér fara á hæli undan í kleifina
og hlífast sem þér megið, en eg mun leita upp á bergið."



Þeir gerðu svo; og er Egill kom upp úr klifinu, þá voru þar
fyrir átta menn og gengu allir senn að honum og sóttu hann;
en ekki er að segja frá höggva viðskiptum; svo lauk, að hann
felldi þá alla. Síðan gekk hann á bergið fram og bar ofan
grjót, og stóð þar ekki við; lágu þar eftir þrír hinir
vermsku, en fjórir komust í skóginn, og voru þeir sárir og
barðir.



Síðan tóku þeir Egill hesta sína og fóru fram á leið, til
þess er þeir komu yfir hálsinn, en þeir hinir vermsku, er
undan höfðu komist, gerðu njósn félögum sínum, þeim er við
fenin voru; stefndu þeir þá fram hina neðri leiðina og svo
fram fyrir þá Egil á veginn.



Þá sagði Úlfur félögum sínum: "Nú skulum vér fara að ráðum
við þá; stilla svo til, að þeir nái eigi að renna; hér er
þannig til farið," segir hann, "að leiðin liggur fram með
hálsinum, en feninu víkur að upp, og er þar hamar fyrir ofan,
en brautin liggur þar fram í milli og er eigi breiðari en
götubreidd. Skulu sumir fara fram um hamarinn og taka við
þeim, ef þeir vilja fram, en sumir skulu leynast hér í
skóginum og hlaupa síðan á bak þeim, er þeir koma fram um;
gætum svo til, að engi komist undan."



Þeir gerðu svo sem Úlfur mælti; fór Úlfur fram um bergið og
tíu menn með honum.



Þeir Egill fara sína leið og vissu ekki til þessar
ráðagerðar, fyrr en þeir komu í einstigið; þá hljópu þar menn
á bak þeim og báru þegar vopn á þá; þeir Egill snerust í móti
og vörðust. Nú drífa og menn að þeim, þeir er verið höfðu
fyrir framan hamarinn, og er Egill sá það, snerist hann í
móti þeim; var þar skammt höggva í millum, og felldi Egill
þar suma í götunni, en sumir hurfu aftur, þar er jafnlendið
var meira. Egill sótti þá eftir þeim; þar féll Úlfur, og að
lyktum drap Egill þar einn ellefu menn; síðan sótti hann þar
til, er förunautar hans vörðu götuna fyrir átta mönnum; voru
þar hvorirtveggju sárir. Og er Egill kom til, þá flýðu þegar
hinir vermsku, en skógurinn var við sjálft; komust þar undan
fimm og allir sárir mjög, en þrír féllu þar.



Egill hafði mörg sár og engi stór; fóru þeir nú sína leið;
hann batt sár förunauta sinna og voru engi banvæn; settust
þeir þá í sleða og óku, það er eftir var dagsins.



En þeir hinir vermsku, er undan komust, tóku hesta sína og
drógust austur af skóginum til byggða; voru þá bundin sár
þeirra; fá þeir sér föruneyti, til þess er þeir komu á fund
jarls, og segja honum sínar ófarar; þeir segja, að hvortveggi
Úlfur er fallinn og dauðir voru hálfur þriðji tigur manna --
"en fimm einir komust undan með lífi og þó þeir allir sárir
og barðir."



Jarl spurði, hvað þá væri tíðinda um Egil og hans förunauta.



Þeir svöruðu: "Ógerla vissum vér, hversu mjög þeir voru
sárir, en ærið djarflega sóttu þeir að oss; þá er vér vorum
átta, en þeir fjórir, þá flýðum vér; komust fimm á skóginn,
en þrír létust, en eigi sáum vér annað en þeir Egill væru þá
spánnýir."



Jarlinn sagði, að þeirra ferð var orðin hin versta -- "myndi
eg kunna því, að vér hefðum mannalát mikið, ef þér hefðuð
drepið þá Norðmennina, en nú er þeir koma vestur af skóginum
og segja þessi tíðindi Noregskonungi, þá eigum vér af honum
von hinna mestu afarkosta."

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.