Egils saga Skalla-Grímssonar 90 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Eg ch. 90)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þorsteinn Egilsson tók skírn, þá er kristni kom á Ísland, og
lét kirkju gera að Borg; hann var maður trúfastur og vel
siðaður; hann varð maður gamall og sóttdauður og var jarðaður
að Borg að þeirri kirkju, er hann lét gera.
Frá Þorsteini er mikil ætt komin og margt stórmenni og skáld
mörg, og er það Mýramannakyn og svo allt það, er komið er frá
Skalla-Grími. Lengi hélst það í ætt þeirri, að menn voru
sterkir og vígamenn miklir, en sumir spakir að viti. Það var
sundurleitt mjög, því að í þeirri ætt hafa fæðst þeir menn,
er fríðastir hafa verið á Íslandi, sem var Þorsteinn Egilsson
og Kjartan Ólafsson, systursonur Þorsteins, og Hallur
Guðmundarson, svo og Helga hin fagra, dóttir Þorsteins, er
þeir deildu um Gunnlaugur ormstunga og Skáld-Hrafn; en fleiri
voru Mýramenn manna ljótastir.
Þorgeir, sonur Þorsteins, var þeirra sterkastur bræðra, en
Skúli var mestur; hann bjó að Borg eftir dag Þorsteins, föður
síns. Skúli var lengi í víking; hann var stafnbúi Eiríks
jarls á Járnbarðanum, þá er Ólafur konungur Tryggvason féll;
Skúli hafði átt í víking sjö orustur.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.