Óláfs saga Tryggvasonar in Heimskringla 79 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓTC ch. 79)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur hélt liði sínu norður með landi og kristnaði
allt fólk þar sem hann fór. En er hann kom norður að Salpti
ætlaði hann að fara inn í fjörðinn og finna Rauð en hregg
veðurs og stakastormur lá innan eftir firðinum og lá konungur
þar til viku og hélst hið sama hreggviðri innan eftir firði
en hið ytra var blásandi byr að sigla norður með landi.
Sigldi þá konungur allt norður í Ömd og gekk þar allt fólk
undir kristni. Síðan snýr konungur ferð sinni aftur suður.
En er hann kom norðan að Salpti þá var hregg út eftir firði
og sjádrif. Konungur lá þar nokkurar nætur og var veður hið
sama. Þá talaði konungur við Sigurð biskup og spurði eftir ef
hann kynni þar nokkuð ráð til leggja. Biskup segir að hann
mundi freista ef guð vill sinn styrk til leggja að sigra
þenna fjandakraft.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.