Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

ÓTC ch. 55

Óláfs saga Tryggvasonar in Heimskringla 55 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (ÓTC ch. 55)

HeimskringlaÓláfs saga Tryggvasonar in Heimskringla
545556

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Ólafur konungur stefndi þing þegar hann kom á Rogaland. En er
búendum kom þingboð þá safnast þeir fjölmennt saman með
alvæpni. En er þeir koma saman taka þeir tal og ráðagerð og
ætla til þess þrjá menn, þá er málsnjallastir voru í þeirra
flokki, að svara Ólafi konungi á þinginu og tala móti honum
og það með að þeir vilja eigi ganga undir ólög þótt konungur
bjóði þeim.



En er bændur koma til þings og þing var sett þá stóð Ólafur
konungur upp og talaði fyrst blíðlega til bónda. Fannst það
þó í hans máli að hann vill að þeir taki við kristni, bað þá
til þess fögrum orðum en að lyktum lét hann það fylgja við þá
er í móti mæltu og eigi vildu undirganga boð hans að þeir
mundu sæta af honum reiði og refsingum og hörðum afarkostum
hvar sem hann mætti við komast.



En er konungur lauk máli sínu þá stóð upp sá af bóndum er
einna var snjallastur og fyrst var til þess tekinn að svara
skyldi Ólafi konungi. En er hann vildi til máls taka þá setur
að honum hósta og þröngva svo mikinn að hann fékk engu orði
upp komið og sest hann niður. Þá stendur upp annar bóndi og
vill sá eigi fallast láta andsvörin þótt hinum fyrra hefði
eigi vel til tekist. En er sá hefur upp mál sitt þá var hann
svo stamur að hann fékk engu orði upp komið. Tóku þá allir að
hlæja er á heyrðu. Settist þá bóndi niður. Þá stóð upp hinn
þriðji og vill tala í móti Ólafi konungi. En er sá tók til
máls var hann svo hás og rámur að engi maður heyrði það er
hann talaði og settist hann niður.



Þá varð engi til af bóndum að mæla í móti konungi. En er
bændur fengu engi til andsvara við konung þá varð engi
uppreist þeirra til mótstöðu við konung. Kom þá svo að allir
játtu því er konungur bauð. Var þá skírt þingfólk það allt
áður konungur skildist þar við.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.