Óláfs saga Tryggvasonar in Heimskringla 51 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓTC ch. 51)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur Tryggvason var til konungs tekinn í Þrándheimi á
allsherjarþingi um land allt svo sem haft hafði Haraldur hinn
hárfagri. Hljóp þá upp múgur og margmenni og vildi eigi annað
heyra en Ólafur Tryggvason skyldi konungur vera. Fór Ólafur
þá um land allt og lagði undir sig. Snerust til hlýðni við
hann allir menn í Noregi, jafnt þeir höfðingjar á Upplöndum
eða í Víkinni er áður höfðu land haldið af Danakonungi, þá
gerðust þeir menn Ólafs konungs og héldu land af honum. Fór
hann svo yfir land hinn fyrsta vetur og eftir um sumarið.
Eiríkur jarl Hákonarson og Sveinn bróðir hans og aðrir
frændur þeirra og vinir flýðu landið og sóttu austur í
Svíaveldi til Ólafs konungs hins sænska og fengu þar góðar
viðtökur.
Svo segir Þórður Kolbeinsson:
Meinremmir, brá, manna
margs fýsa sköp, varga,
ljóða litlu síðar
læ Hákonar ævi.
En til lands þess er lindar
láðstafr vegið hafði
hraustr, þá er her fór vestan,
hygg eg komu son Tryggva.
Hafði sér við særi,
slíks var von að honum,
auðs en upp um kvæði
Eiríkr í hug meira.
Sótti reiðr að ráðum,
rann engi því manna,
þrályndi gafst Þrændum,
þrænskr jarl konung sænskan.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.