Óláfs saga helga (in Heimskringla) 235 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 235)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur féll miðvikudag fjórða Kalendas
Augustimánaðar. Það var nær miðjum degi er þeir fundust en
fyrir miðmunda hófst orustan en konungur féll fyrir nón en
myrkrið hélst frá miðmunda til nóns.
Sighvatur skáld segir svo frá lyktum orustu:
Hörð er, síðs hermenn firrðu,
hlíf raufst fyr gram, lífi,
auðn að Engla stríði,
ómjúk, konung sjúkan.
Ör brá Ólafs fjörvi
öld, þar er her klauf skjöldu,
fólks, odda gekk fylkir
fund, en Dagr hélt undan.
Og enn kvað hann þetta:
Áðr vita eigi meiðar
ógnar skers né hersa,
þjóð réð þengils dauða,
þann styrk búandmanna,
er slíkan gram sóknum
sárelds viðir felldu,
mörg lá dýr í dreyra
drótt, sem Ólafr þótti.
Bændur rændu ekki valinn og varð þegar eftir orustu heldur
svo að hræðslu sló á marga þá er móti konungi höfðu verið en
þó héldu þeir illviljanum og dæmdu það sín á millum að allir
þeir menn er með konungi höfðu fallið skyldu hafa engan þann
umbúning eða gröft sem góðum mönnum sómdi og kölluðu þá alla
ránsmenn og útlaga. En þeir menn er ríkir voru og þar áttu
frændur í valnum gáfu ekki því gaum, fluttu þeir sína frændur
til kirkna og veittu umbúnað.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.