Óláfs saga helga (in Heimskringla) 223 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 223)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
En er skipað var til fylkingar bónda þá töluðu lendir menn og
báðu liðsmenn gefa gaum að um stöður sínar, hvar hverjum var
skipað eða undir hverju merki þá skyldi hver vera eða hvert
frá merkinu eða hversu nær honum var skipað merkinu. Báðu
þeir menn vera þá vakra og skjóta að ganga í fylking er
lúðrar kvæðu við og herblástur kæmi upp og ganga þá fram í
fylking því að þeir áttu þá enn leið mjög langa að flytja
herinn og var þess von að fylkingar mundu bregðast í
hergöngunni. Síðan eggjuðu þeir liðið.
Mælti Kálfur að allir þeir menn er harma og heiftir áttu að gjalda Ólafi konungi skyldu þá fram ganga undir þau merki er fara skyldu í móti merki Ólafs, vera þá minnigir þeirra meingerða er hann hafði þeim veitt, segir að þeir mundu eigi komast í betra færi að hefna harma sinna og frelsa sig svo frá þeirri ánauð og þrældóm er hann hafði þá undir lagt. "Er nú sá," segir hann, "bleyðimaður er eigi berst nú sem djarflegast, því að eigi er saklaust við þá er í móti yður eru. Munu þeir eigi yður spara ef þeir komast í færi."
Að máli hans varð allmikill rómur. Varð þá kall mikið og
eggjan um allan herinn.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.