Óláfs saga helga (in Heimskringla) 147 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 147)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Knútur hinn ríki hafði búið her sinn úr landi. Hafði hann óf
liðs og skip furðulega stór. Hann sjálfur hafði dreka þann er
svo var mikill að sextugur var að rúmatali. Voru þar á höfuð
gullbúin. Hákon jarl hafði annan dreka. Var sá fertugur að
rúmatali. Voru þar og gyllt höfuð á en seglin bæði voru
stöfuð öll með blá og rauðu og grænu. Öll voru skipin steind
fyrir ofan sæ. Allur búnaður skipanna var hinn glæsilegsti.
Mörg önnur skip höfðu þeir stór og búin vel.
Þess getur Sighvatur skáld í Knútsdrápu:
Knútr var und himnum.
Hann austan fer,
fríðr fylkis niðr,
fráneygr, Dana.
Skreið vestan viðr,
varglæstr, sá er bar
út andskota
Aðalráðs þaðan.
Og báru í byr
blá segl við rá,
dýr var döglings för,
drekar landreka.
En, þeir er komu,
kilir, vestan til,
um leið liðu,
Limafjarðar, brim.
Svo er sagt að Knútur konungur hélt her þeim hinum mikla
vestan af Englandi og kom heilu öllu liði sínu til Danmarkar
og lagði til Limafjarðar. Var þar fyrir safnaður mikill
landsmanna.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.