Óláfs saga helga (in Heimskringla) 104 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 104)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Nú fer tvennum sögum fram og skal þar nú til taka sem frá var
horfið er frá því var sagt er Ólafur Haraldsson hafði frið
gert við Ólaf Svíakonung og það að Ólafur konungur fór það
sumar norður til Þrándheims. Hann hafði þá verið konungur
fimm vetur.
Það haust bjó hann til vetursetu í Niðarósi og sat þar um veturinn. Þann vetur var með Ólafi konungi Þorkell fóstri Ámundason sem fyrr var ritað. Ólafur konungur leiddi þá mjög að spurningum um kristnihald hvert þá væri í landinu og spurðist honum svo til sem ekki væri kristnihaldið þegar er norður sótti á Hálogaland en þó skorti mikið á að vel væri um Naumudal og inn um Þrándheim.
Maður er nefndur Hárekur sonur Eyvindar skáldaspillis. Hann bjó í ey þeirri er Þjótta heitir. Það er á Hálogalandi. Eyvindur hafði maður verið ekki stórauðigur, ættstór og skörungur mikill. Í Þjóttu bjuggu þá smáir bændur og eigi allfáir. Hárekur keypti þar einn bæ fyrst og eigi allmikinn og fór þar búðum til. En á fám misserum hafði hann rutt í brott öllum bóndum þeim er þar bjuggu áður svo að hann átti þá einn alla eyna og gerði þar þá höfuðbæ mikinn. Hárekur varð brátt vellauðigur. Hann var spekingur mikill að viti og framkvæmdarmaður. Hann hafði lengi haft af höfðingjum metnað mikinn. Hann var í frændsemistölu við Noregskonunga. Af þeim sökum hafði Hárekur haft mikil metorð af landshöfðingjum. Gunnhildur föðurmóðir Háreks var dóttir Hálfdanar jarls og Ingibjargar dóttur Haralds hins hárfagra.
Hárekur var þá heldur á efra aldri þá er þetta er tíðinda.
Hárekur var mestur virðingamaður á Hálogalandi. Hann hafði þá
langa hríð Finnkaup og konungssýslu á Mörkinni. Hafði hann
stundum einn haft en stundum höfðu aðrir suma með honum. Ekki
hafði hann komið á fund Ólafs konungs en þó höfðu farið orð
og sendimenn millum þeirra og var það allt vingjarnlegt og
þann vetur er Ólafur konungur sat í Niðarósi fóru enn menn
milli þeirra Háreks úr Þjóttu. Þá lýsti konungur yfir því að
um sumarið eftir ætlaði hann sér að fara norður á Hálogaland
og allt norður til landsenda en þeir Háleygirnir hugðu
allmisjafnt til þeirrar ferðar.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.