Óláfs saga helga (in Heimskringla) 56 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 56)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Einar þambarskelfir og sú sveit er honum hafði fylgt fór um
veturinn til Svíakonungs og var þar í góðu yfirlæti. Þar var
og mart annarra manna er jarli hafði fylgt.
Svíakonungi hugnaðist stórilla við Ólaf digra það er hann hafði sest í skattland hans en rekið í brott Svein jarl. Konungur hét þar fyrir Ólafi hinum mestum afarkostum þá er hann mætti við komast. Segir hann að eigi mun Ólafur svo djarfur vera að hann muni taka undir sig það veldi er jarl hafði átt. Því fylgdu margir Svíakonungs menn að svo mundi vera.
En er Þrændir spurðu til sanns að Sveinn jarl var andaður og hans var ekki von til Noregs þá snerist öll alþýða til hlýðni við Ólaf konung. Fóru þá margir menn innan úr Þrándheimi á fund Ólafs konungs og gerðust menn hans en sumir sendu orð og jartegnir að þeir vildu þjóna honum.
Fór hann þá um haustið inn í Þrándheim og átti þing við
bændur. Var hann þar í hverju fylki til konungs tekinn. Hann
fór þá út til Niðaróss og lét þangað flytja allar
konungsskyldir og efnaði þar til vetursetu.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.