Óláfs saga helga (in Heimskringla) 53 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 53)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur hélt til njósnum um farar jarls en er hann
spurði það að jarl var úr landi farinn þá fór hann vestur
eftir Víkinni. Dreif þá lið til hans. Var hann til konungs
tekinn á þingum. Fór hann svo allt til Líðandisness. Þá
spurði hann að Erlingur Skjálgsson hafði safnað mikinn.
Dvaldist hann þá ekki á Norður-Ögðum því að hann fékk
hraðbyri. Fór hann sem skyndilegast norður til Þrándheims því
að honum þótti þar vera allt megin landsins ef hann fengi þar
undir sig komið meðan jarl var úr landi.
En er Ólafur konungur kom í Þrándheim þá varð þar engi
uppreist í móti honum og var hann þar til konungs tekinn og
settist þar um haustið í Niðarósi og bjó þar til veturvistar
og lét þar húsa konungsgarð og reisa þar Klemenskirkju í þeim
stað sem nú stendur hún. Hann markaði tóftir til garða og gaf
bóndum og kaupmönnum eða þeim öðrum er honum sýndist og húsa
vildu. Hann sat þar fjölmennur því að hann treystist illa
Þrændum um trúleik ef jarl kæmi aftur í landið. Voru berastir
í því Innþrændir og fékk hann þaðan engar skyldir.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.