Óláfs saga helga (in Heimskringla) 48 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 48)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Sunnudagsmorguninn þegar er lýsti stóð Ólafur konungur upp og
klæddist, gekk á land, lét þá blása öllu liðinu til
landgöngu. Þá átti hann tal við liðið og segir alþýðu að hann
hefir þá spurt að skammt mun milli þeirra Sveins jarls.
"Skulum vér nú," segir hann, "við búast því að skammt mun
vera til fundar vors. Vopnist menn nú og búi hver sig og sitt
rúm, þar er áður er skipað, svo að allir séu þá búnir er eg
læt blása til brautlögunnar. Róum síðan samfast, fari engir
fyrr en allur fer flotinn, dveljist og engi þá eftir er eg ræ
úr höfninni því að eigi megum vér vita hvort vér munum
jarlinn hitta, þar er nú liggur hann, eða munu þeir sækja í
móti oss. En ef fund vorn ber saman og takist orusta þá
heimti vorir menn saman skipin og séu búnir að tengja. Hlífum
oss fyrst og gætum vopna vorra að vér berum eigi á sæ eða
köstum á glæ. En er festist orusta og skipin hafa saman
bundist gerið þá sem harðasta hríðina og dugi hver sem
mannlegast."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.