Óláfs saga helga (in Heimskringla) 41 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓHHkr ch. 41)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Sveinn jarl var þá inn í Þrándheimi að Steinkerum og lét þar
búa til jólaveislu. Þar var kaupstaður.
Einar þambarskelfir spurði að Orkdælar höfðu gengið til handa Ólafi konungi. Þá sendi hann njósnarmenn til Sveins jarls. Fóru þeir fyrst til Niðaróss og tóku þar róðrarskútu er Einar átti. Þeir fóru síðan inn eftir firði og komu einn dag síðarla inn til Steinkera og báru þessi erindi jarli og segja allt um ferð Ólafs konungs.
Jarl átti langskip er flaut tjaldað fyrir býnum. Lét hann
þegar um kveldið flytja á skipið lausafé sitt og klæðnað
manna og drykk og vist, svo sem skipið tók við, og reru út
þegar um nóttina og komu í lýsing í Skarnsund. Þar sáu þeir
Ólaf konung róa utan eftir firði með lið sitt. Snýr jarl þá
að landi inn fyrir Masarvík. Þar var þykkur skógur. Þeir
lögðu svo nær berginu að lauf og limar tóku út yfir skipið.
Þá hjuggu þeir stór tré og settu allt á útborða í sjá ofan
svo að ekki sá skipið fyrir laufinu og var eigi alljóst orðið
þá er konungur reri inn um þá. Logn var veðurs. Reri konungur
inn um eyna en er sýn fal milli þeirra reri jarl út á fjörð
og allt út á Frostu, lögðu þar að landi. Þar var hans ríki.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.