Óláfs saga kyrra 3 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (ÓlKyrr ch. 3)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur konungur hafði þá hirðsiðu að hann lét standa fyrir
borði sínu skutilsveina og skenkja sér með borðkerum og svo
öllum tignum mönnum þeim er að hans borði sátu. Hann hafði og
kertisveina þá er kertum héldu fyrir borði hans og jafnmörgum
sem tignir menn sátu upp. Þar var og stallarastóll utar frá
trapisu er stallarar sátu á og aðrir gæðingar og horfðu innar
í mót hásæti. Haraldur konungur og aðrir konungar fyrir honum
voru vanir að drekka af dýrahornum og bera öl úr öndugi um
eld og drekka minni á þann er honum sýndist.
Svo segir Stúfur skáld:
Vissi eg hildar hvessi,
hann var nýstr að kanna,
af góðum byr Gríðar
gagnsælan mér fagna,
þá er blóðstara bræðir,
baugum grimmr, að Haugi
gjarn með gylltu horni
gekk sjálfr á mig drekka.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.