Magnúss saga ins góða 29 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (MGóð ch. 29)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Magnús konungur sneri þá herinum móti Sveini er hann kallaði
jarl sinn þótt Danir kölluðu hann konung. Réð Magnús konungur
sér til skipa og bjó herinn. Fjölmenntu þá hvorirtveggju
mjög. Voru þá margir höfðingjar í liði Sveins, Skánungar,
Hallandsfarar, Fjónbúar. En Magnús konungur hafði mest
Norðmenn og Jóta. Hélt hann þá liði sínu til móts við Svein.
Varð fundur þeirra fyrir Vestlandi á Ré.
Varð þar orusta mikil og lauk svo að Magnús konungur hafði
sigur en Sveinn kom á flótta og lét lið mikið. Flýði hann þá
aftur á Skáney því að hann átti hæli uppi á Gautlandi ef hann
þurfti til að taka. En Magnús konungur fór þá aftur til
Jótlands og sat þar um veturinn fjölmennur og hafði gæslu á
skipum sínum.
Þessa getur Arnór jarlaskáld:
Fús lét á Ré ræsir
rammþing háið Glamma.
Valska rauð fyr víðu
Vestlandi gramr branda.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.