Magnúss saga ins góða 17 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (MGóð ch. 17)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Haraldur Englakonungur andaðist fimm vetrum eftir andlát
Knúts hins ríka föður síns. Hann var jarðaður hjá föður sínum
í Vincestur.
Eftir andlát hans tók konungdóm í Englandi Hörða-Knútur
bróðir Haralds, annar sonur gamla Knúts. Var hann þá konungur
bæði yfir Englandi og Danaveldi. Réð hann því ríki tvo vetur.
Hann varð sóttdauður á Englandi og er jarðaður í Vincestur
hjá föður sínum.
Eftir andlát hans var til konungs tekinn í Englandi Játvarður
hinn góði, sonur Aðalráðs Englakonungs og Emmu drottningar
dóttur Ríkarðar Rúðujarls. Játvarður konungur var bróðir
sammæðri Haralds og Hörða-Knúts.
Gunnhildur hét dóttir gamla Knúts og Emmu. Hún var gift
Heinreki keisara í Saxlandi. Hann var kallaður Heinrekur
mildi. Gunnhildur var þrjá vetur í Saxlandi áður hún tók
sótt. Hún andaðist tveimur vetrum eftir andlát Knúts konungs
föður síns.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.