Magnúss saga berfœtts 15 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Mberf ch. 15)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Annað sumar eftir var lögð konungastefna við Konungahellu í
Elfi og kom þar Magnús Noregskonungur og Ingi Svíakonungur,
Eiríkur Sveinsson Danakonungur, og var sú stefna bundin með
griðum. En er þingið var sett þá gengu konungar fram á
völlinn frá öðrum mönnum og töluðust við litla hríð, gengu þá
aftur til liðs síns og var þá ger sættin. Skyldi hver þeirra
hafa það ríki sem áður höfðu haft feður þeirra en hver þeirra
konunga bæta við sína landsmenn rán og mannskaða en hver
þeirra síðan jafna við annan. Magnús konungur skyldi fá
Margrétar dóttur Inga konungs. Hún var síðan kölluð
friðkolla.
Það var mál manna að eigi hefði séð höfðinglegri menn en þeir
voru allir. Ingi konungur var einna mestur og þrekulegastur
og þótti hann öldurmannlegastur en Magnús konungur þótti
skörulegastur og hvatlegastur en Eiríkur konungur var einna
fegurstur. En allir voru þeir fríðir, stórir menn og
göfuglegir og orðsnjallir.
Og skildust að svo búnu.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.