Magnúss saga berfœtts 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Mberf ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Magnús sonur Ólafs konungs var þegar til konungs tekinn í
Víkinni eftir andlát Ólafs konungs yfir allan Noreg.
En er Upplendingar spurðu andlát Ólafs konungs þá tóku þeir
til konungs Hákon Þórisfóstra, bræðrung Magnúss. Síðan fóru
þeir Hákon og Þórir norður til Þrándheims. En er þeir komu
til Niðaróss þá stefndu þeir Eyraþing og á því þingi beiðir
Hákon sér konungsnafns og var honum það veitt, að bændur tóku
hann til konungs yfir hálft land svo sem haft hafði Magnús
konungur faðir hans. Hákon tók af við Þrændi landauragjald og
gaf þeim margar aðrar réttarbætur. Hann tók af og við þá
jólagjafir. Snerust þá og allir Þrændir til vináttu við Hákon
konung. Þá tók Hákon konungur sér hirð, fór síðan aftur til
Upplanda. Hann veitti Upplendingum réttarbætur allar slíkar
sem Þrændum. Voru þeir og fullkomnir vinir hans.
Þá var þetta kveðið í Þrándheimi:
Ungr kom Hákon hingað,
hann er bestr alinn manna,
frægðar mildr, á foldu,
fór með Steigar-Þóri.
Syni Ólafs bauð síðan
sjálfr um Noreg hálfan
mildr, en Magnús vildi
málsnjallr hafa allan.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.