Magnúss saga Erlingssonar 9 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (MErl ch. 9)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Markús á Skógi hét maður upplenskur, frændi Sigurðar jarls.
Markús fóstraði son Sigurðar konungs. Sá hét Sigurður. Síðan
tóku Upplendingar Sigurð til konungs með ráði Sigurðar jarls
og annarra höfðingja þeirra er fylgt höfðu Hákoni konungi og
höfðu þeir þá enn styrk mikinn liðs. Fór flokkurinn oftlega í
tvenningu. Var konungur og Markús minnur á viðborða en
Sigurður jarl og aðrir höfðingjar með sínar sveitir meir við
háskann. Fóru þeir með flokkinn mest um Upplönd en stundum
ofan í Víkina.
Erlingur skakki hafði með sér jafnan Magnús son sinn. Hafði hann skipastól allan og landvarnir. Var hann í Björgyn um haustið hríð nokkura og fór þaðan austur í Vík og settist í Túnsbergi, efnaði þar til vetursetu og safnaði að sér um Víkina sköttum og skyldum þeim er konungur átti. Hann hafði og frítt lið og mikið.
En með því að Sigurður jarl hafði lítið af landi en mikið var
fjölmenni varð brátt féfátt og þar er eigi voru höfðingjar
nær þá varð eftir fénu leitað mjög aflaga, sumt með freklegum
sakagiftum en sumt berlega með ránum.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.