Landnámabók 102 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Ldn ch. 102)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Nú er yfir farið um landnám þau, er vér höfum heyrt, að verið
hafi á Íslandi, en þessir landnámsmenn hafa göfgastir verið í
Sunnlendingafjórðungi: Hrafn hinn heimski, Ketill hængur,
Sighvatur rauði, Hásteinn Atlason, Ketilbjörn hinn gamli,
Ingólfur, Örlygur gamli, Helgi bjóla, Kolgrímur hinn gamli,
Björn gullberi, Önundur breiðskeggur.
Svo segja fróðir menn, að landið yrði albyggt á sex tigum
vetra, svo að eigi hefir síðan orðið fjölbyggðra; þá lifðu
enn margir landnámsmenn og synir þeirra.
Þá er landið hafði sex tigu vetra byggt verið, voru þessir
höfðingjar mestir á landinu: í Sunnlendingafjórðungi Mörður
gígja, Jörundur goði, Geir goði, Þorsteinn Ingólfsson,
Tungu-Oddur, en í Vestfirðingafjórðungi Egill
Skalla-Grímsson, Þorgrímur Kjallaksson, Þórður gellir, en
norður Miðfjarðar-Skeggi, Þorsteinn Ingimundarson, Guðdælir,
Hjaltasynir, Eyjólfur Valgerðarson, Áskell goði, en í
Austfirðingafjórðungi Þorsteinn hvíti, Hrafnkell goði,
Þorsteinn faðir Síðu-Halls, Þórður Freysgoði. Hrafn Hængsson
hafði þá lögsögu.
Svo segja vitrir menn, að nokkurir landnámsmenn hafi skírðir
verið, þeir er byggt hafa Ísland, flestir þeir, er komu
vestan um haf. Er til þess nefndur Helgi magri og Örlygur
hinn gamli, Helgi bjóla, Jörundur kristni, Auður djúpauðga,
Ketill hinn fíflski og enn fleiri menn, er komu vestan um
haf, og heldu þeir sumir vel kristni til dauðadags. En það
gekk óvíða í ættir, því að synir þeirra sumra reistu hof og
blótuðu, en land var alheiðið nær hundraði vetra.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.