Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Ldn ch. 97

Landnámabók 97 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Ldn ch. 97)

Anonymous íslendingasögurLandnámabók
969798

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Össur hvíti hét maður, son Þorleifs úr Sogni. Össur vó víg í
véum á Upplöndum, þá er hann var í brúðför með Sigurði hrísa;
fyrir það varð hann landflótti til Íslands og nam fyrst öll
Holtalönd milli Þjórsár og Hraunslækjar; þá var hann sautján
vetra, er hann vó vígið. Hann fékk Hallveigar Þorviðardóttur.
Þeirra son var Þorgrímur kampi, faðir Össurar, föður
Þorbjarnar, föður Þórarins, föður Gríms Tófusonar.



Össur bjó í Kampaholti; hans leysingi var Böðvar, er bjó í
Böðvarstóftum við Víðiskóg. Honum gaf Össur hlut í skóginum
og skildi sér eftir hann barnlausan. Örn úr Vælugerði, er
fyrr er getið, stefndi Böðvari um sauðatöku. Því handsalaði
Böðvar Atla Hásteinssyni fé sitt, en hann ónýtti mál fyrir
Erni. Össur andaðist, þá er Þorgrímur var ungur; þá tók Hrafn
Þorviðarson við fjárvarðveislu Þorgríms.



Eftir andlát Böðvars taldi Hrafn til Víðiskógs og bannaði
Atla, en Atli þóttist eiga. Þeir Atli fjórir fóru eftir viði;
Leiðólfur var með honum. Smalamaður sagði Hrafni það, en hann
reið eftir honum við átta mann; þeir fundust í Orustudal og
börðust þar. Húskarlar Hrafns féllu tveir; hann varð sár.
Einn féll af Atla, en (hann) varð sár banasárum og reið heim.
Önundur bíldur skildi þá og bauð Atla til sín.



Þórður dofni, son Atla, var þá níu vetra. En þá er hann var
fimmtán vetra, reið Hrafn í Einarshöfn til skips; hann var í
blárri kápu og reið heim um nótt. Þórður sat einn fyrir honum
hjá Haugavaði skammt frá Traðarholti og vó hann þar með
spjóti. Þar er Hrafnshaugur fyrir austan götuna, en fyrir
vestan Hásteinshaugur og Atlahaugur og Ölvis. Vígin féllust í
faðma.



Þórður hófst af þessu; hann fékk þá Þórunnar, dóttur Ásgeirs
austmannaskelfis, er drap skipshöfn austmanna í Grímsárósi
fyrir rán, það er hann var ræntur austur.



Þórður hafði þá tvo vetur og tuttugu, er hann keypti skip í
Knarrarsundi og vildi heimta arf sinn; þá fal hann fé mikið;
því vildi Þórunn eigi fara og tók þá með löndum. Þorgils son
Þórðar var þá tvævetur. Skip Þórðar hvarf.



Vetri síðar kom Þorgrímur örrabeinn til ráða með Þórunni, son
Þormóðar og Þuríðar Ketilbjarnardóttur; hann fékk Þórunnar,
og var þeirra son Hæringur.



Óláfur tvennumbrúni hét maður; hann fór af Lófót til Íslands;
hann nam Skeið öll milli Þjórsár (og Hvítár og) til
Sandlækjar; hann var hamrammur mjög. Óláfur bjó á
Óláfsvöllum; hann liggur í Brúnahaugi undir Vörðufelli.



Óláfur átti Áshildi, og var þeirra son Helgi trausti og Þórir
drífa, faðir Þorkels gullkárs, föður Orms, föður Helgu móður
Odds Hallvarðssonar. Vaði var hinn þriðji son Óláfs, faðir
Gerðar.



Þorgrímur (örrabeinn) lagði hug á Áshildi, þá er Óláfur var
dauður, en Helgi vandaði um; hann sat fyrir Þorgrími við
gatnamót fyrir neðan Áshildarmýri. Helgi bað hann láta af
komum. Þorgrímur lést eigi hafa barna skap. Þeir börðust; þar
féll Þorgrímur. Áshildur spurði, hvar Helgi hefði verið; hann
kvað vísu:



Vask, þars fell til Fyllar,

fram sótti vinr dróttar,

Örrabeinn, en unnar

ítrtungur hátt sungu.

Ásmóðar gafk Óðni

arfa þróttar djarfan.

Guldum galga valdi

Gauts tafn, en ná hrafni.


Áshildur kvað hann hafa höggvið sér höfuðsbana. Helgi tók sér
far í Einarshöfn.



Hæringur son Þorgríms var þá sextán vetra, er hann reið í
Höfða að finna Teit Gissurarson með þriðja mann. Þeir Teitur
riðu fimmtán að banna Helga far. Þeir fundust í Merkurhrauni
upp frá Mörk við Helgahvol; þeir Helgi voru þrír saman,
komnir af Eyrum. Þar féll Helgi og maður með honum og einn af
þeim Teiti; í faðma féllust víg þau.



Sonur Helga var Sigurður hinn landverski og Skefill hinn
haukdælski, faðir Helga dýrs, er barðist við Sigurð, son
Ljóts löngubaks, í Öxarárhólma á alþingi. Um það orti Helgi
þetta:



Band's á hægri hendi,

hlautk sár af Tý báru,

lýg ek eigi þat, leygjar,

linnvengis Bil, minni.


Hrafn var annar son Skefils, faðir Gríms, föður Ásgeirs,
föður Helga.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.