Landnámabók 95 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Ldn ch. 95)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ráðormur og Jólgeir bræður komu vestan um haf til Íslands;
þeir námu land milli Þjórsár og Rangár.
Ráðormur eignaðist land fyrir austan Rauðalæk og bjó í
Vétleifsholti. Hans dóttir var Arnbjörg, er átti Svertingur
Hrolleifsson. Þeirra börn voru þau Grímur lögsögumaður og
Jórunn. Síðar átti Arnbjörgu Gnúpur Molda-Gnúpsson, og voru
þeirra börn Hallsteinn á Hjalla og Rannveig, móðir Skafta
lög(sögu)manns, og Geirný, móðir Skáld-Hrafns.
Jólgeir eignaðist land fyrir utan Rauðalæk og til
Steinslækjar; hann bjó á Jólgeirsstöðum.
Áskell hnokkan, son Dufþaks Dufníalssonar, Kjarvalssonar
Írakonungs, hann nam (land) milli Steinslækjar og Þjórsár og
bjó í Áskelshöfða. Hans son var Ásmundur, faðir Ásgauts,
föður Skeggja, föður Þorvalds, föður Þorlaugar, móður
Þorgerðar, móður Jóns byskups hins helga.
Þorkell bjálfi, fóstbróðir Ráðorms, eignaðist lönd öll milli
Rangár og Þjórsár og bjó í Háfi; hann átti Þórunni eyversku.
Þeirra dóttir var Þórdís, móðir Skeggja, föður Þorvalds í
Ási. Þaðan hafði Hjalti mágur hans reiðskjóta til alþingis og
þeir tólf, þá er hann var út kominn með kristni, en engi
treystist annar fyrir ofríki Rúnólfs Úlfssonar, er sektan
hafði Hjalta um goðgá.
Nú eru ritaðir þeir menn, er lönd hafa numið í landnámi
Ketils hængs.
Loftur son Orms Fróða(sonar) kom af Gaulum til Íslands ungur
að aldri og nam fyrir utan Þjórsá milli Rauðár og Þjórsár og
upp til Skúfslækjar og Breiðamýri hina eystri upp til
Súluholts og bjó í Gaulverjabæ og Oddný móðir harms, dóttir
Þorbjarnar gaulverska.
Loftur fór utan hið þriðja hvert sumar fyrir hönd þeirra
Flosa beggja, móðurbróður síns, að blóta að hofi því, er
Þorbjörn móðurfaðir hans hafði varðveitt. Frá Lofti er margt
stórmenni komið, Þorlákur hinn helgi, Páll og Brandur.
Þorviður son Úlfars, bróðir Hildar, fór af Vörs til Íslands,
en Loftur frændi hans gaf honum land á Breiðamýri, og bjó
hann í Vörsabæ. Hans börn voru þau Hrafn og Hallveig, er átti
Össur hinn hvíti, þeirra son Þorgrímur kampi.
Þórarinn hét maður, sonur Þorkels úr Alviðru Hallbjarnarsonar
Hörðakappa; hann kom skipi sínu í Þjórsárós og hafði
þjórshöfuð á stafni, og er þar áin við kennd. Þórarinn nam
land fyrir ofan Skúfslæk til Rauðár með Þjórsá. Hans dóttir
var Heimlaug, er Loftur gekk að eiga sextögur.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.