Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Ldn ch. 55

Landnámabók 55 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Ldn ch. 55)

Anonymous íslendingasögurLandnámabók
545556

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Eysteinn meinfretur son Álfs úr Ostu nam Hrútafjarðarströnd
hina eystri næst eftir Bálka og bjó þar nokkura vetur, áður
hann fékk Þórhildar dóttur Þorsteins rauðs; þá réðst hann
norðan í Dali og bjó þar. Þeirra synir voru þeir Álfur í
Dölum, Þórður og Þórólfur refur og Hrappur.



Þóroddur hét maður, er land nam í Hrútafirði og bjó á
Þóroddsstöðum; hans son var Arnór hýnefur, er átti Gerði
dóttur Böðvars úr Böðvarshólum. Þeirra synir voru þeir
Þorbjörn, er Grettir vó, (og) Þóroddur drápustúfur, faðir
Valgerðar, er átti Skeggi skammhöndungur Gamlason
Þórðarsonar, Eyjólfssonar, Eyjarssonar, Þórólfssonar
fasthalda frá Snæfjöllum. Son Skeggja skammhöndungs var
Gamli, faðir Álfdísar móður Odds munks.



Skútaðar-Skeggi hét maður ágætur í Noregi; hans son var
Björn, er kallaður var Skinna-Björn, því að hann var
Hólmgarðsfari; og er honum leiddust kaupferðir, fór hann til
Íslands og nam Miðfjörð og Línakradal. Hans son var
Miðfjarðar-Skeggi; hann var garpur mikill og farmaður.



Hann herjaði í Austurveg og lá í Danmörk við Sjóland, er hann
fór austan; þar gekk hann upp og braust í haug Hrólfs kraka
og tók þar úr Sköfnung, sverð Hrólfs konungs, og öxi Hjalta
og mikið fé annað, en hann náði eigi Laufa.



Skeggi bjó á Reykjum í Miðfirði og átti... Þeirra börn voru
þau Eiður, er átti Hafþóru, dóttur Þorbergs kornamúla og
Álöfar elliðaskjaldar, systur Þorgeirs gollnis; þau áttu mörg
börn. Annar son Skeggja var Kollur, faðir Halldórs, föður
þeirra Þórdísar, er Skáld-Helgi átti, og Þorkötlu. Dætur
Skeggja voru þær Hróðný, er átti Þórður gellir, og Þorbjörg,
er átti Ásbjörn hinn auðgi Harðarson. Þeirra dóttir var
Ingibjörg, er átti Illugi hinn svarti, þeirra synir
Gunnlaugur ormstunga, Hermundur og Ketill.



Haraldur hringur hét maður ættstór; hann kom skipi sínu í
Vesturhóp og sat hinn fyrsta vetur þar nær, sem hann hafði
lent og nú heita Hringsstaðir. Hann nam Vatnsnes allt utan
til Ambáttarár fyrir vestan, en fyrir austan inn til Þverár
og þar yfir um þvert til Bjargaóss og allt þeim megin bjarga
út til sjóvar, og (bjó) að Hólum. Son hans var Þorbrandur,
faðir Ásbrands, föður Sölva hins prúða á Ægissíðu og
Þorgeirs, er bjó að Hólum; hans dóttir var Ástríður, er átti
Arnmóður Heðinsson: Heðinn var son þeirra. Önnur dóttir
Þorgeirs var Þorgerður, er átti Þorgrímur, son Péturs frá
Ósi.



Sóti hét maður, er nam Vesturhóp og bjó undir Sótafelli.



Hunda-Steinar hét jarl á Englandi; hann átti Álöfu, dóttur
Ragnars loðbrókar. Þeirra börn voru þau Björn, faðir Auðunar
skökuls, og Eiríkur, faðir Sigurðar bjóðaskalla, og Ísgerður,
er átti Þórir jarl á Vermalandi.



Auðun skökull fór til Íslands og nam Víðidal og bjó á
Auðunarstöðum. Með (honum) kom út Þorgils gjallandi félagi
hans, faðir Þórarins goða. Auðun skökull var faðir Þóru
mosháls, móður Úlfhildar, móður Ástu, móður Óláfs konungs
hins helga. Son Auðunar skökuls var Ásgeir að Ásgeirsá; hann
átti Jórunni, dóttur Ingimundar hins gamla. Þeirra börn voru
þau Þorvaldur, faðir Döllu, móður Gissurar byskups, og Auðun,
faðir Ásgeirs, föður Auðunar, föður Egils, er átti Úlfheiði,
dóttur Eyjólfs Guðmundarsonar, og var þeirra son Eyjólfur, er
veginn var á alþingi, faðir Orms, kapalíns Þorláks byskups.
Annar son Auðunar skökuls var Eysteinn, faðir Þorsteins,
föður Helga, föður Þórorms, föður Odds, föður Hallbjarnar,
föður Sighvats prests. Dóttir Ásgeirs að Ásgeirsá var
Þorbjörg bekkjarbót.



Ormur hét maður, er nam Ormsdal og bjó þar. Hann var faðir
Odds, föður Þórodds, föður Helga, föður Harra, föður Jóru,
móður Þórdísar, móður Tanna föður Skafta.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.