Landnámabók 14 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Ldn ch. 14)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Hvamm-Þórir nam land á milli Laxár og Fossár og bjó í Hvammi.
Þórir deildi við Ref hinn gamla um kú þá, er Brynja hét; við
hana er dalurinn kenndur. Hún gekk þar úti með fjóra tigu
nauta, og voru öll frá henni komin. Þeir Refur og Þórir
börðust hjá Þórishólum; þar féll Þórir og átta menn hans.
Þorsteinn, son Sölmundar Þórólfssonar smjörs, nam land milli
Botnsár og Fossár, Brynjudal allan. Hann átti Þorbjörgu
kötlu, dóttur Helga skarfs; þeirra son var Refur hinn gamli,
er Bryndælir eru frá komnir.
Nú eru taldir þeir menn, er búið hafa í landnámi Ingólfs,
vestur frá honum.
Maður hét Ávangur, írskur að kyni; hann byggði fyrst í Botni.
Þar var þá svo stór skógur, að hann gerði þar af hafskip.
Hans son var Þorleifur, faðir Þuríðar, er átti Þormóður
Þjóstarsson á Álftanesi og Iðunnar Molda-Gnúpsdóttur. Sonur
Þormóðar var Börkur, faðir Þórðar, föður Auðunar í
Brautarholti.
Kolgrímur hinn gamli, son Hrólfs hersis, nam land út frá
Botnsá til Kalmansár og bjó á Ferstiklu.
Hann átti Gunnvöru, dóttur Hróðgeirs hins spaka. Þeirra börn
voru þau Þórhalli, faðir Kolgríms, föður Steins, föður
Kvists, er Kvistlingar eru frá komnir. Bergþóra var dóttir
Kolgríms hins gamla, er átti Refur í Brynjudal.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.