Haraldssona saga 26 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSona ch. 26)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Eysteinn og Sigurður höfðu verið ósáttir fyrir þá sök að
Sigurður konungur hafði vegið hirðmann Eysteins konungs,
Harald hinn víkverska er hús átti í Björgyn, og annan Jón
prest taparð, son Bjarna Sigurðarsonar. Fyrir þá sök lögðu
þeir með sér sættarstefnu um veturinn á Upplöndum. Þeir sátu
lengi tveir á máli en það kom upp úr hjali þeirra að þeir
skyldu hittast í Björgyn allir bræður eftir um sumarið. Það
fylgdi því máli að þeir vildu að Ingi konungur hefði bú tvö
eða þrjú og svo mikil önnur auðæfi að hann hefði þrjá tigu
manna með sér og lést þykja hann eigi hafa heilsu til að vera
konungur.
Ingi og Gregoríus spurðu þessi tíðindi og fóru til Björgynjar og fjölmenntu mjög. Sigurður kom litlu síðar og hafði hann lið sýnu minna. Þá höfðu þeir Ingi og Sigurður verið nítján vetur konungar yfir Noregi. Eysteinn var seinni austan úr Víkinni en þeir norðan.
Þá lét Ingi konungur blása til þings í Hólm og koma þeir þar
Sigurður og Ingi konungur og fjölmenni mikið. Gregoríus hafði
tvö skip og vel níu tigu manna er hann fékk allar vistir.
Hann hélt betur húskarla sína en aðrir menn lendir því að
hann drakk aldrei svo í skytningum að eigi drykkju húskarlar
hans allir með honum. Hann gekk með hjálm gullroðinn á þingið
og allt hans lið var hjálmað. Ingi konungur stóð upp og sagði
mönnum frá hvað hann hafði spurt, hvernug bræður hans vildu
við hann skipa og bað sér liðs en alþýða manna gerði góðan
róm að máli hans og létust honum vilja fylgja.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.