Haraldssona saga 14 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSona ch. 14)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Magnús hét hinn fjórði sonur Haralds konungs. Hann fóstraði
Kyrpinga-Ormur. Hann var og til konungs tekinn og hafði sinn
hluta af landi. Magnús var veill á fótum og lifði litla hríð
og varð sóttdauður.
Hans getur Einar Skúlason:
Auð gefr Eysteinn lýðum.
Eykr hjaldr Sigurðr skjaldar.
Lætr Ingi slög syngva.
Semr Magnús frið bragna.
Fjöldýrs, hafa fjórir,
fólktjald, komið aldrei,
rýðr bragnings kyn blóði,
bræðr und sól en æðri.
Eftir fall Haralds konungs gilla var Ingiríður drottning gift Óttari birtingi. Hann var lendur maður og höfðingi mikill, þrænskur að ætt. Hann var mikill styrktarmaður Inga konungs meðan hann var í barnæsku. Sigurður konungur var ekki mikill vinur hans og þótti hann allt hallur undir Inga konung mág sinn.
Óttar birtingur var drepinn norður í Kaupangi í einvígi um
kveld er hann skyldi ganga til aftansöngs. En er hann heyrði
hvininn af högginu þá brá hann upp hendi sinni og skikkju í
móti og hugði að kastað væri snjákekki að honum sem títt er
ungum sveinum. Hann féll við höggið. En Álfur hroði sonur
hans kom þá gangandi í kirkjugarðinn. Hann sá fall föður síns
og svo að maður sá er vegið hafði hljóp austur um kirkjuna.
Álfur hljóp eftir honum og drap hann við sönghúshornið og
mæltu menn að honum hefði vel gefið hefndina og þótti hann
miklu meiri maður en áður.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.