Haraldssona saga 9 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSona ch. 9)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
"Það er mál Sigurðar konungs að mæla til Inga konungs bróður
síns að guð þakki honum góða kveðju og svo starf og torveldi
er þú hefir og þínir vinir í ríki þessu að beggja okkarra
nauðsyn. En þótt sumt þyki heldur örðigt í orðum Inga konungs
til Sigurðar konungs bróður síns þá hefir hann mikið til máls
síns í marga staði. Nú vil eg lýsa yfir mínu skapi og heyra
hvort þar fylgi vilji Sigurðar konungs eða annarra ríkismanna
að þú, Sigurður konungur, búist og það lið er þér vill
fylgja, að verja land þitt og far sem fjölmennastur á fund
Inga konungs bróður þíns sem fyrst máttu og styrki hvor ykkar
annan í öllum farsællegum hlutum en almáttigur guð báða
ykkur. Nú viljum vér heyra orð þín konungur."
Pétur, sonur Sauða-Úlfs bar Sigurð konung á þingið er síðan var kallaður Pétur byrðarsveinn.
Þá mælti konungur: "Vita það allir menn, ef eg skal ráða, að eg vil fara á fund Inga konungs bróður míns sem fyrst má eg."
En þar talaði annar að öðrum og hóf sinnsig hver en lauk í
sama stað sínu máli sem svarað hafði Óttar birtingur. Og var
þá það ráðið að stefna liði saman og fara austur í land.
Síðan fór Sigurður konungur austur í Vík og hitti þar Inga
konung bróður sinn.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.