Haralds saga Sigurðssonar 100 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 100)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Halldór sonur Brynjólfs gamla úlfalda var vitur maður og
höfðingi mikill.
Hann mælti svo þá er hann heyrði ræður manna að menn
misjöfnuðu mjög skaplyndi þeirra bræðra, Ólafs hins helga
konungs og Haralds, Halldór sagði svo: "Eg var með báðum þeim
bræðrum í kærleikum miklum og var mér hvorstveggja skaplyndi
kunnigt. Fann eg aldrei tvo menn skaplíkari. Þeir voru báðir
hinir vitrustu og hinir vopndjörfustu, menn ágjarnir til fjár
og ríkis, ríklyndir, ekki alþýðlegir, stjórnsamir og
refsingasamir. Ólafur konungur braut landsfólk til kristni og
réttra siða en refsaði grimmlega þeim er daufheyrðust við.
Þoldu landshöfðingjar honum eigi réttdæmi og jafndæmi og
reistu her í móti honum og felldu hann á eigu sinni sjálfs.
Varð hann fyrir það heilagur. En Haraldur herjaði til frægðar
sér og ríkis og braut allt fólk undir sig, það er hann mátti.
Féll hann og á annarra konunga eigu. Báðir þeir bræður voru
menn hversdaglega siðlátir og veglátir. Þeir voru og
víðförlir og eljamarmenn miklir og urðu af slíku víðfrægir og
ágætir."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.