Haralds saga Sigurðssonar 38 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 38)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Magnús konungur Ólafsson lét gera Ólafskirkju í Kaupangi. Í
þeim stað hafði náttsætt verið lík konungs. Það var þá fyrir
ofan bæinn. Hann lét þar og reisa konungsgarðinn. Kirkjan
varð eigi alger áður konungur andaðist. Lét Haraldur konungur
fylla það er á skorti. Hann lét og efna þar í garðinum að
gera sér steinhöll og varð hún eigi alger áður hann lést.
Haraldur konungur lét reisa af grundvelli Maríukirkju uppi á
melinum, nær því er heilagur dómur konungsins lá í jörðu hinn
fyrsta vetur eftir fall hans. Það var mikið musteri og gert
sterklega að líminu svo að varla fékk brotið þá er Eysteinn
erkibiskup lét ofan taka. Heilagur dómur Ólafs konungs var
varðveittur í Ólafskirkju meðan Maríukirkja var í gerð.
Haraldur konungur lét húsa konungsgarð ofan frá Maríukirkju
við ána þar sem nú er. En þar sem hann hafði höllina látið
gera lét hann vígja hús það til Gregoríuskirkju.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.