Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

HSig ch. 32

Haralds saga Sigurðssonar 32 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (HSig ch. 32)

HeimskringlaHaralds saga Sigurðssonar
313233

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Haraldur konungur Sigurðarson tók konungdóm yfir öllum Noregi
eftir andlát Magnúss konungs Ólafssonar. En er hann hafði
ráðið Noregi einn vetur og er að vori kom þá bauð hann
leiðangri út af öllu landi, hálfum almenningi að liði og
skipum, og hélt suður til Jótlands. Hann herjaði um sumarið
víða og brenndi og lagði í Goðnarfjörð.



Þá orti Haraldur konungur þetta:



Látum vér, meðan lirlar

líneik veri sínum,

Gerðr, í Goðnarfirði,

galdrs, akkeri halda.


Þá mælti hann til Þjóðólfs skálds, bað hann þar við yrkja.



Hann kvað:



Sumar annað skal sunnar,

segi eg eina spá, fleini,

vér aukum kaf króki,

kaldnefr furu halda.


Til þess vísar Bölverkur í sinni drápu að Haraldur fór hið
næsta sumar eftir andlát Magnúss konungs til Danmerkur:



Leiðangr bjóstu af láði,

lögr gekk um skip, fögru,

gjálfrstóðum reistu græði

glæstum, ár hið næsta.

Skokkr lá dýr á dökkri,

Danir váru þá, báru,

skeiðr sá her fyr hauðri

hlaðnar, illa staðnir.


Þá brenndu þeir bæ Þorkels geysu. Hann var höfðingi mikill.
Voru þá leiddar dætur hans bundnar til skipa. Þær höfðu gert
spott mikið áður um veturinn, um það að Haraldur konungur
mundi fara til Danmerkur með herskipum. Þær skáru úr osti
akkeri og sögðu að slík mundu vel mega halda skipum
Noregskonungs.



Þá var þetta kveðið:



Skáru jast úr osti

eybaugs Dana meyjar,

það angraði þengil,

þing, akkerishringa.

Nú sér mörg í morgun

mær, hlær að því færi,

ernan krók úr járni

allvalds skipum halda.


Svo segja menn að njósnarmaður mælti, sá er séð hafði flota
Haralds konungs, við dætur Þorkels geysu: "Það sögðuð þér
Geysudætur að Haraldur mundi eigi koma til Danmarkar."



Dótta svaraði: "Svo var í gjárna."



Þorkell leysti út dætur sínar með ógrynni fjár.



Svo segir Grani:



Lét aldregi úti

ósvífr Kraka drífu

Hlökk í harða þjokkum

Hornskógi brá þorna.

Fila drottinn rak flótta

fjanda grams til strandar.

Auð varð út að reiða

allskjótt faðir Dóttu.


Haraldur konungur herjaði allt þetta sumar Danaveldi og fékk
ógrynni fjár en ekki varð hann ílendur á því sumri í Danmörk,
fór aftur um haustið til Noregs og var þar um veturinn.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.