Haralds saga Sigurðssonar 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Haraldur, sonur Sigurðar sýr, bróðir Ólafs konungs hins helga
sammæðri, hann var á Stiklastöðum í orustu þá er hinn helgi
Ólafur konungur féll. Varð Haraldur þá sár og komst í brott
með öðrum flóttamönnum.
Svo segir Þjóðólfur:
Hvasst frá eg Haugi hið næsta
hlífél á gram drífa,
en Bolgara brennir
bræðr sínum vel tæði.
Skildist hann og huldi
hjálmsetr, gamall vetra
tyggi tólf og þriggja,
trauðr við Ólaf dauðan.
Rögnvaldur Brúsason flutti Harald úr orustu og kom honum til
bónda nokkurs er bjó í skógi langt frá öðrum mönnum. Var
Haraldur þar læknaður til þess er hann var heill. Síðan
fylgdi sonur bónda honum austur um Kjöl og fóru þeir allt
markleiði, það er svo mátti, en ekki alþýðuveg. Vissi
bóndason ekki til hverjum hann fylgdi.
Og er þeir riðu milli eyðiskóga nokkurra þá kvað Haraldur
þetta:
Nú læt eg skóg af skógi
skreiðast lítils heiðar.
Hver veit nema eg verði
víða frægr um síðir?
Hann fór austur um Jamtaland og Helsingjaland og svo til
Svíþjóðar. Fann hann þar Rögnvald jarl Brúsason og mjög marga
aðra þá menn er komist höfðu úr orustu, menn Ólafs konungs.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.