Haralds saga hárfagra 31 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HHárf ch. 31)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þá er Haraldur konungur var fertugur að aldri þá voru margir
synir hans vel á legg komnir. Þeir voru allir bráðgervir. Kom
þá svo að þeir undu illa við er konungur gaf þeim ekki ríki
en setti jarl í hverju fylki og þótti þeim jarlar vera
smábornari en þeir voru.
Þá fóru til á einu vori Hálfdan háleggur og Guðröður ljómi
með mikla sveit manna og komu á óvart Rögnvaldi Mærajarli og
tóku hús á honum og brenndu hann inni við sex tigu manna. Þá
tók Hálfdan langskip þrjú og skipaði og siglir síðan vestur
um haf en Guðröður settist þar að löndum sem áður hafði haft
Rögnvaldur jarl.
En er Haraldur konungur spurði þetta þá fór hann þegar með
liði miklu á hendur Guðröði. Sá Guðröður engan annan sinn
kost en gefast upp í vald Haralds konungs og sendi konungur
hann austur á Agðir. En Haraldur konungur setti þá yfir Mæri
Þóri son Rögnvalds jarls og gifti honum Ólöfu dóttur sína er
kölluð var árbót. Þórir jarl þegjandi hafði þá ríki þvílíkt
sem haft hafði Rögnvaldur jarl faðir hans.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.