Haralds saga hárfagra 13 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HHárf ch. 13)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Um vorið eftir fór Haraldur konungur suður með landi með
skipaher og lagði undir sig Firðafylki. Síðan sigldi hann
austur með landi og kom fram í Vík austur. Haraldur konungur
setti eftir í Fjörðum Hákon jarl Grjótgarðsson og fékk honum
Firðafylki að yfirsókn.
En er konungur var austur farinn þá sendi Hákon jarl orð Atla
jarli hinum mjóva að hann skyldi fara braut úr Sogni og vera
jarl á Gaulum sem hann hafði fyrr haft. En Atli sagði Harald
konung hafa veitt sér Sygnafylki og kveðst því mundu halda
til þess er hann fyndi Harald konung. Jarlarnir þreyta þetta
með sér þar til er báðir safna her. Þeir hittast á Fjölum í
Stafanesvogi og áttu mikla orustu. Þar féll Hákon jarl en
Atli jarl varð sár til ólífis. Fóru menn hans til Atleyjar
með hann og þar andaðist hann.
Svo segir Eyvindur skáldaspillir:
Varð Hákon,
Högna meyjar
viðr, vopnber,
er vega skyldi,
og sinn aldr
í odda gný
Freys áttungr
á Fjölum lagði.
Og þar, varð,
er vinir féllu
magar Hallgarðs
manna blóði
Stafaness
við stóran gný
vinar Lóðurs
vogr of blandinn.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.